Í anda sumars og samráðs gefst íbúum borgarinnar núna tækifæri á að velja lit á tvö ný hjólahlið sem verður komið upp á Laugavegi við Bergstaðastræti og Klapparstíg. Hjólin loka göngugötum sumarsins fyrir bílaumferð og skreyta á sama tíma Sumargöturnar sem eru orðnar fastur liður í tilveru Reykvíkinga þegar sólin tekur að hækka á lofti. Valið er um sólblómagult, himinblátt, ferskjurautt eða tyggjóbleikt. Kíktu á facebook síðu Reykjavíkurborgar dagana 23. og 24. maí og taktu þátt í að velja litina á hjólin sem markar Sumargötur. Nýju hjólahliðin verða sprautuð í þeim litum sem hljóta flest atkvæði.