Sumarferð Söguhrings kvenna á sunnudag

Menning og listir

""

Listaverkið, Dot.com, sem Söguhringur kvenna skapaði veturinn 2011-2012 hangir uppi í Ráðhúsi Reykjavíkur og hefur vakið mikla athygli og aðdáun. Listaverkið er búið til úr mörgum punktum og er aðferðin sótt til mörg þúsund ára gamallar hefðar meðal frumbyggja Ástrala í listsköpun og tjáningu.    Búa til listaverk fyrir Kaffitár  Kaffitár og auglýsingstofan Hvíta Húsið hafa óskað eftir því við Söguhring kvenna að hópurinn máli nýtt listaverk út frá sömu aðferð, til notkunar á kaffiumbúðum þeirra  og í öðru kynningarefni. Aðferð ástralskra frumbyggja ásamt hugmyndafræði Söguhrings kvenna höfðar til Kaffitárs þar sem gildi fyrirtækisins eru ástríða - sérfræðiþekking – alúð – fjölmenning.  Kaffitár vinnur út frá Fair Trade og vilja borga fyrir listaverk sem við sköpum saman. Slíkt fjármagn mun fara í að þróa enn fleiri sköpunarverkefni í Söguhringi kvenna í framtíðinni. Af þessu tilefnui mun Söguhringur kvenna fara í árlega sumarferð þann 26. maí nk.og heimsækja fyritækið Kaffitár í Njarðvík. Rúta fer frá aðalsafni Borgarbókasafnsins á sunnudaginn klukkan 13. Vonast er til að sem flestar taki þátt í þessu skemmtilega verkefni, þar sem að enn og aftur verður skapað eitthvað fallegt sem hópurinn verður stoltur af og á eftir að vera sýnilegt allsstaðar.Þeir sem geta boðið upp á far til Njarðvikur (bensíngjald verður endurgreitt) endilega látið vita fyrirfram. Allar nánari upplýsingar veitir Kristín R. Vilhjálmsdóttir, verkefnisstjóri, netfang: kristin.r.vilhjalmsdottir@reykjavik.is. Skráning sendist á netfangið: akw1@hi.is. Athugið skráningu lýkur föstudaginn 24. maí nk. kl. 11.00.