Sumardagurinn fyrsti í Miðborg og Hlíðum

Nýtt útilistaverk fyrir börn og fullorðna afhjúpað við Kjarvalstaði sumardaginn fyrsta

Listasafn Reykjavíkur afhjúpar útilistaverkið Viðsnúning eftir Guðjón Ketilsson við hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum, sumardaginn fyrsta, 25. apríl kl.13. Verkið á í sérstöku samtali við umhverfið á Klambratúni og er unnið með það í huga að börn geti nýtt það í leik og starfi. Verkefnið var unnið í samráði við íbúa í Hlíðum og hverfisráði en það varð fyrir valinu í samráðsverkefni Betra hverfið á síðasta ári. Einar Örn Benediktsson formaður menningar-og ferðamálráðs Reykjavíkurborgar afhjúpar útilistaverkið.

Dómnefnd sem m.a. skipuð fulltrúm frá Íbúasamtökum Hlíðanna, hverfisráði Hlíða og innkaupanefnd Listasafns Reykjavíkur valdi tillögu Guðjóns Ketilssonar að útilistaverknu á síðasta ári. Dómnefndin taldi tillögu Guðjóns áhugaverða fyrir börn og fullorðna, hún væri einföld, skemmtileg og gæfi ímyndunaraflinu lausan tauminn.

Útilistaverkið er afhjúpa meðan á Barnamenningarhátið stendur en í tilefni af henni fá fullorðnir í fylgd með börnum frítt inn á kjarvalsstaði og Ásmundarsafn frá 23. - 28.apríl.

Íbúar í hverfinu eru boðnir sérstalega velkomnir á afhjúpunina.

Frístundamiðstöðin Kampur býður uppá fjölskylduskemmtun milli 12.00 - 13.00 á Klambratúni. Hoppukastali fyrir börnin, dótakassinn fyrir alla fjölskylduna. Veitingasala á vegum útskriftarhóps Háteigsskóla.

Líf og fjör á Klambratúni