Sumardagurinn fyrsti
Sumardagurinn fyrsti verður haldinn hátíðlegur fimmtudaginn 25. apríl næstkomandi. Hátíðarhöldin hefjast með skrúðgöngu frá Spönginni kl. 11.30. Skólahljómsveit Grafarvogs og Skátafélagið Hamar leiða gönguna. Kl. 11.45 hefst fjölbreytt dagskrá í Rimaskóla.
Meðal þess sem boðið er uppá er: Tónlistaratriði frá Tónskóla Hörpunnar, Tónlistarskóla Grafarvogs og frá félagsmiðstöðvum Gufunesbæjar; Töframaður; Danssýning frá Dansskóla Ragnars; Söng- og dansatriði frá frístundaheimilum Gufunesbæjar í tilefni af Barnamenningarhátíð; Kynning á sumarstarfi Gufunesbæjar, Fjölnir o.fl.; Leiktæki; Street hokkí (gott að vera á línuskautum); Veitingasala og Andlitsmálun.
Dagskrá lýkur kl. 14.00.