Reykjavíkurborg mun styrkja íþróttafélagið Leikni um 800 þúsund vegna samstarfsverkefnis Leiknis og Íþróttafélags Reykjavíkur um eflingu kvennaknattspyrnu í Breiðholti. Á undanförnum árum hefur knattspyrnuiðkun stúlkna minnkað í hverfinu og er verkefnið liður í því að snúa blaðinu við, sækja fram og efla starfsemina á ný. Lögð verður áhersla á almenna þátttöku, holla hreyfingu og að efla félagsfærni.
Að sögn Þórðar Einarssonar, framkvæmdastjóra Leiknis, hefur verið skipað sérstakt kvennaflokksráð sem skipað er fulltrúum frá bæði ÍR og Leikni, sem mun vinna með þjálfurum og foreldraráðum að eflingu starfsins. Þá hefur verið gengið frá ráðningu á verkefnastjóra sem mun vinna að ýmsum verkefnum sem miða að því að fjölga og auka ánægju iðkenda og styðja við þjálfun og starfsemi flokkanna. Þórður segir verkefnið nú þegar hafa skilað árangri og að styrkurinn komi til með að nýtast til enn frekari uppbyggingar á íþróttaþátttöku stúlkna í hverfinu.