Styrkja betra mannlíf og félagsauð í hverfum borgarinnar
Hverfissjóður Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum um styrki til að efla mannlífið í borginni. Einstaklingar, hópar, félagasamtök eða stofnanir geta sótt um styrk allt að 700 þúsund krónur hver.
Verkefni sem leitað er að eiga að stuðla að bættu mannlífi, eflingu félagsauðs, fegurri ásýnd borgarhverfa, auknu öryggi eða efla samstarf íbúa, félagasamtaka og fyrirtækja við borgarstofnanir. Hægt er að sækja um styrki til verkefna hvort sem þau tengjast einu eða fleiri hverfum eða almennt í borginni.
Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudaginn 10. júní 2013 og eru nánari upplýsingar á vef Reykjavíkurborgar - http://reykjavik.is/hverfissjodur-reykjavikur en þar má finna úthlutunarreglur, umsóknareyðublað og stofnskrá sjóðsins.
Þetta er í fyrsta sinn sem veitt er úr Hverfissjóði Reykjavíkurborgar, en hann byggir á samfélagssjóði SPRON sem var færður borginni til varðveislu og úthlutunar. Borgarstjóri skipar í stjórn Hverfissjóðs Reykjavíkur.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar > http://reykjavik.is/hverfissjodur-reykjavikur