Styrkir úr Kirkjubyggingasjóði

Menning og listir

""

Hér með auglýsir Kirkjubyggingarsjóður Reykjavíkurborgar eftir umsóknum um styrki vegna ársins 2013. Sjóðnum er ætlað að veita fjármunum til að byggja kirkjur og safnaðarheimili í Reykjavík, en einnig má styrkja endurbætur og meiriháttar viðhald á kirkjum í borginni.



Umsóknir um styrki sendist Ráðhúsi Reykjavíkur merktar „Kirkjubyggingasjóður“ fyrir

20. apríl nk.



Þau skilyrði eru sett fyrir því að umsókn sé tekin til greina að henni fylgi greinargóðar upplýsingar um fyrirhugaðar framkvæmdir, ársreikningur 2012, ráðstöfun fyrri styrkja sé um þá að ræða, svo og um fjármögnun verksins að öðru leyti.

Frekari upplýsingar fást hjá stjórn sjóðsins.

Netföng stjórnarmanna eru:

  • Karl Sigurðsson: karl.sigurdsson@reykjavik.is
  • Gísli Jónasson: gisli.jonasson@kirkjan.is
  • Jóhannes Pálmason: palmason@simnet.is