Styrkir úr húsverndarsjóði Reykjavíkurborgar

Húsverndarsjóður Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum um styrki til viðgerðar og endurgerðar á byggingum í Reykjavík sem hafa sérstakt varðveislugildi af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum.



Eftirtaldar upplýsingar skulu koma fram í umsókn:



1. Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum.

2. Tímaáætlun.

3. Kostnaðaráætlun.

4. Ljósmyndir af húsinu eins og það er nú og eldri ljósmyndir ef þær eru til.



Frekari upplýsingar eru veittar í Húsverndarstofu í Árbæjarsafni sem opin er á miðvikudögum frá kl. 16 - 18 og í síma 411 6333 á sama tíma.



Umsóknum skal skila á þar til gerðu eyðublaði sem er að finna á vef Umhverfis- og skipulagssviðs, www.skipbygg.is og vef Minjasafns Reykjavíkur www.minjasafnreykjavikur.is. Umsóknareyðublöð liggja einnig frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12 - 14.



Umsóknir skulu berast Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, eða rafrænt á netfangið: skipulag@reykjavik.is, í síðasta lagi 15. febrúar 2013.



Vakin er athygli á því að styrkir sem úthlutað var 2012 og ekki hafa verið nýttir eru fallnir niður.