Strumpagleði í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Menning og listir

""

Alþjóðlega strumpadeginum verður fagnað í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum nk. laugardag 22. júní.  Hann er haldinn hátíðlegur víða um heim til að halda minningu skapara strumpanna Peyo á lofti en þann 25. júní verða 85 ár liðin frá fæðingu hans.

Garðurinn verður rækilega skreyttur í Strumpabláum lit þar sem fánar og blöðrur verða alls ráðandi. Þá verður hægt að fá bláan ís og bláar sykursátur (candyfloss). Ókeypis andlitsmálning verður í boði fyrir þá sem vilja og fullorðnir eru ekki síst hvattir til að láta slag standa. Siðast en ekki síst mun alvöru tveggja metra háum Strumpi bregða fyrir.

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn verður opinn frá klukkan 10 til 18 á laugardaginn líkt og alla aðra daga í sumar.  Góðu skapi er spáð og almennri og mikilli Strumpagleði.

Dagurinn er haldinn í samstarfi við Senu sem er dreifingaraðili myndarinnar Strumparnir 2 sem frumsýnd verður hérlendis þann 31. júlí.