Stóri leikskóladagurinn kynnir kraft, sköpun og mikilvægi leikskólastarfs

Skóli og frístund Mannlíf

""

Stóri leikskóladagurinn í Reykjavík verður haldinn föstudaginn 7. júní 2013 kl. 08:30 – 15:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur og Tjarnarbíói.  Í Ráðhúsinu fer fram kynning á leikskólastarfi í Reykjavík og Reykjanesbæ en Reykjanesbær er gestur Stóra leikskóladagsins í ár. Fyrirlestrar verða fluttir í Tjarnarbíói. Allir eru boðnir velkomnir að koma og kynna sér skapandi og fjölbreytt starf leikskólanna.

Græn hugsun, leikur, listir, samskipti og vísindi er meðal þess sem leikskólarnir kynna í Ráðhúsinu.  Leikskólinn Bakkaborg verður með kynningu um áherslur skólans á gleði, vináttu og virðingu. Leikskólinn kynnir þriggja ára þróunarstarf sem hefur að markmiði að efla samskiptafærni í leikskólanum. Hluti verkefnisins er að aðlaga stefnuna Uppeldi til ábyrgðar að ungum aldri barnanna á Bakkaborg

Á leikskólanum Furuskógi hafa börnin fræðst um fuglana í nánasta umhverfi skólans og kynna afraksturinn af þeim rannsóknum.

Engjaborg, Brekkuborg og Austurborg hafa bundist samstarfi undir nafninu HEBA en skólarnir vinna allir í anda ítölsku stefnunnar Reggio Emilia. Sameiginlegt þema leikskólanna þennan vetur var eldurinn og er afrakstur vetrarins verður sýndur í máli og myndum. Frábær samvinna en mismunandi nálgun.

Frá gestunum, Reykjanesbæ, má nefna leikskólann Holt, en þau hafa verið að rýna í bæjarfélagið sitt og leitast við að greina lýðræði og læsi. Markmiðið með félagsfærniverkefnum er að hjálpa börnum að skilja betur tilfinningar sínar, hugsanir, langanir og líðan. Lögð er áhersla á að hvert barn fái að njóta sín á eigin forsendum.

Þetta er bara brot af því sem Stóri leikskóladagurinn hefur upp á að bjóða. Allir sem áhuga hafa á leikskólastarfi, barnauppeldi og menningu barna ættu að kíkja í Ráðhús Reykjavíkur á föstudaginn næstkomandi.