Stóri leikskóladagurinn í Reykjavík verður haldinn föstudaginn 7. júní 2013 kl. 8:30–15:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur og Tjarnarbíói. Í Ráðhúsinu fer fram kynning á leikskólastarfiog í Tjarnarbíó fara fram fyrirlestrar. Allir eru velkomnir á viðburðinn.
Græn hugsun, leikur, listir, samskipti og vísindi er meðal þess sem leikskólarnir kynna í Ráðhúsinu. Leikskólinn Bakkaborg verður með kynningu um áherslur skólans á gleði, vináttu og virðingu. Leikskólinn kynnir þriggja ára þróunarstarf sem hefur að markmiði að efla samskiptafærni í leikskólanum. Hluti verkefnisins er að aðlaga stefnuna Uppeldi til ábyrgðar að ungum aldri barnanna á Bakkaborg
Á leikskólanum Furuskógi hafa börnin fræðst um fuglana í nánasta umhverfi skólans og kynna afraksturinn af þeim rannsóknum.
Engjaborg, Brekkuborg og Austurborg hafa bundist samstarfi undir nafninu HEBA en skólarnir vinna allir í anda ítölsku stefnunnar Reggio Emilia. Sameiginlegt þema leikskólanna þennan vetur var eldurinn og er afrakstur vetrarins verður sýndur í máli og myndum. Frábær samvinna en mismunandi nálgun.
Frá gestunum, Reykjanesbæ, má nefna leikskólann Holt, en þau hafa verið að rýna í bæjarfélagið sitt og leitast við að greina lýðræði og læsi. Markmiðið með félagsfærniverkefnum er að hjálpa börnum að skilja betur tilfinningar sínar, hugsanir, langanir og líðan. Lögð er áhersla á að hvert barn fái að njóta sín á eigin forsendum.
Þetta er bara brot af því sem Stóri leikskóladagurinn hefur upp á að bjóða. Allir sem áhuga hafa á leikskólastarfi, barnauppeldi og menningu barna ættu að kíkja í Ráðhús Reykjavíkur á föstudaginn næstkomandi.
Dagskrá Stóra leikskóladagsins í Ráðhúsi og Tjarnarbíói
Stóri leikskóladagurinn í Reykjavík verður haldinn föstudaginn 7. júní 2013 kl. 8:30–15:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur og Tjarnarbíói. Í Ráðhúsinu fer fram kynning á leikskólastarfi í Reykjavík og Reykjanesbæ sem er gestur Stóra leikskóladagsins í ár. Allir eru boðnir velkomnir á viðburðinn.