Stóra Upplestrarkeppnin í Breiðholti

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2013 fór fram í Fella- og Hólakirkju miðvikudaginn 20. mars. Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn stendur árlega fyrir upplestrarkeppni allra grunnskóla í landinu. Barnakórinn ”Litrófið” söng undir stjórn Ragnhildar Ásgeirsdóttur djákna auk þess komu fram ungir hljóðfæraleikarar sem stunda nám í Breiðholti. Árni Daníel Árnason lék á trompet, Þórhildur Katrín Baldursdóttir lék á  piano og Sólveig Aðalbjört Guðmundsdóttir lék á selló.

Nemendur í sjöunda bekk, úr grunnskólum hverfisins, lásu brot úr skáldverki og ljóð.

Þeir sem tóku þátt í upplestrakeppninni að þessu sinni voru:

1. Davíð Edward Anderson, Breiðholtsskóli 

2. Helena Sól Alexandersdóttir, Seljaskóli varð í þriðja sæti

3. Katla Björk Gunnarsdóttir, Ölduselsskóli varð í öðru sæti

4. Díana Ýr Reynisdóttir, Fellaskóli

5. Telma Rós Jónsdóttir, Hólabrekkuskóli

6. Sólveig A Guðmundsdóttir, Breiðholtsskóli

7. Svava Sól Matthíasdóttir, Seljaskóli varð í fyrsta sæti

8. Xenia Katrín Gonzales Munos, Ölduselsskóli 

9. Mary Jane Rafael, Fellaskóli

10. Sævar Atli Magnússon, Hólabrekkuskóli