Stofnfundur Hollvina Hæðargarðs

Velferð

Fjölmenni var á stofnfundi vinafélags Félagsmiðstöðvarinnar Hæðargarði 31. Fundurinn fór fram 15. febrúar sl. og kusu 42 skráðir stofnfélagar þriggja manna ráð forsvarsmanna Hollvina Hæðargarðs. Í ráðið voru kosnar þær;  Björg Björgvinsdóttir, Sólveig Leifsdóttur og Anna Axelsdóttur sem munu skipta með sér verkum. Einnig munu þær þrjár taka sæti f.h. félagsins Hollvina Hæðargarðs  í Æðstaráði Hæðargarðs.

Í upphafi fundarins flutti Una María Óskarsdóttir MA í lýðheilsufræðum frá HÍ erindi um niðurstöður rannsóknar sinnar á áhrifum félagsstarfs á heilsufar fólks. Ásdís Skúladóttir kynnti aðdraganda að stofnun HOLLVINA HÆÐARGARÐS og lagði fyrir fundinn drög að stofnskrá sem var samþykkt samhljóða.

Hollvinir Hæðargarðs er félagsskapur fólks sem vill stuðla að frjóu og virku félagsstarfi í Hæðargarði 31  þar sem fer saman góður félagsskapur um skapandi- og uppbyggilegt  starf fyrir alla þá er þangað sækja, unga sem aldna. Markmið félagsins, sem er opið öllum, er að styðja við starfið í Félagsmiðstöðinni Hæðargarði 31 og efla með því félagsauð í borginni. Með vinafélaginu er hugmyndin að  auka vitund fólks um mikilvægi félagslegra samskipta fólks og um þá aðstöðu sem í boði er hjá borginni til betra mannlífs.  

Góður rómur var gerður að þessu framtaki  hjá vinum Hæðargarðs og kastaði einn fundarmanna, Kristín Ólafsdóttir, fram braghendu  af þessu tilefni:

 Heyrði ég af Hollvinum í Hæðargarði

félagi sem fyrr en varði

fullvíst myndi skila arði

 

Auðvitað er enginn vafi að óskir rætast

Hæðargarsins hagur bætast

Hollvinir þá saman kætast.

 

Fundarstjóri var Helga Margrét Guðmundsdóttir og Anna Axelsdóttir ritaði fundargerð.