Stöðumat fyrir nemendur með íslensku sem annað mál
Dr. Elín Þöll Þórðardóttir kynnti á dögunum rannsókn sem hún hefur unnið í samstarfi við skóla- og frístundasvið og miðar að því þróa próf til að meta hvort nemendur sem eru að læra íslensku sem annað tungumál hafi nægilega góð tök á málinu til að fylgjast með skólastarfi í sínum bekk.
Tölfræði- og rannsóknaþjónusta SFS safnaði tölfræðigögnum, en verkefnið var styrkt af Þróunarsjóði innflytjenda. Prófið hjálpar skólum að greina stöðu einstakra nemenda og grípa til viðeigandi ráðstafana. Einnig verður hægt að hafa niðurstöður prófsins til hliðsjónar við endurskoðun úthlutunar til íslenskukennslu.
Í liðinni viku bauðst svo öllum grunnskólum í borginni að senda fulltrúa á námskeið þar sem Elín Þöll fjallaði um niðurstöður sínar, uppbyggingu prófsins og notkun þess. Þeir sem sátu námskeiðið geta nú lagt prófið fyrir nemendur í sínum skólum.