Grænfáninn var dreginn að húni við hátíðlega athöfn í fimmta sinn í Steinahlíð í gær, 6.júní. Að þessu sinni var það Gerður Magnúsdóttir sem afhenti fánann fyrir hönd Landverndar. Það var hátíðarstemning í Steinahlíð og það var stoltur hópur barna sem tók við fánanum og dró hann að húni.
Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Þeir skólar sem vilja komast á græna grein í umhverfismálum leitast við að stíga sjö skref á sviði umhverfismála. Þegar því marki er náð fá skólarnir leyfi til að flagga Grænfánanum næstu tvö ár en sú viðurkenning fæst endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum.