Stefnt að opnun í Skálafelli um helgina

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Skíðasvæðið í Skálafelli opnar á morgun ef veður leyfir og hafa starfsmenn unnið að undirbúningi undanfarið. Farið hefur verið reglulega með snjótroðara á svæðið til að varna því að vindur feyki snjónum á brott.   Í Skálafelli verður opið kl. 10 - 17 um helgar fram yfir páska þegar veður leyfir. 

Nýjustu upplýsingar um þjónustu skíðasvæðanna hverju sinni er að finna á vefnum www.skidasvaedi.is. 



Skíðafólk þarf þó ekki að bíða til morguns því að í dag er opið í Bláfjöllum frá kl. 14 - 21. Á vef skíðasvæðanna í morgun er sagt að lægja eigi uppúr hádegi en hvessa seint í kvöld. Það er því gott að koma á skíði í dag. Færið er þurr troðinn snjór. Göngubraut verður lögð í dag og rútuferðir eru samkvæmt áætlun.

Um helgina hefst Skíðaskóli Bláfjalla og er sagt frá því á Facebook-síðu Skíðasvæðanna – Skoða síðu . Skólinn er frá kl. 10.30 - 14.30 með matarpásu í hádeginu og er hádegismatur innifalinn í verði sem er 6.000 kr. á mann.  Skólinn verður allar helgar í vetur í Bláfjöllum. Skráning er á midar@skidasvaedi.is og er mæting 30 minútum  áður en kennsla hefst.