Stefna og starfsáætlun skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar fyrir árið 2013 er komin út. Er þetta önnur starfsáætlun sviðsins sem stofnað var haustið 2011. Starfsstaðir skóla- og frístundasviðs munu gera sínar starfsáætlanir og byggja á grunni starfsáætlunarinnar, út frá stefnukorti og þeim markmiðum sem þar eru sett fram, aðlaga þær að sinni starfsemi og setja fram leiðir til að ná sínum markmiðum.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar er stærsta svið borgarinnar. Undir það heyrir rekstur leikskóla, grunnskóla, frístundamiðstöðva Námsflokka Reykjavíkur, skólasafnamiðstöðvar, myndvers og skólahljómsveita. Sviðið hefur umsjón með úthlutun fjármagns og eftirlit með starfsemi sjálfstætt starfandi leikskóla, grunnskóla og listaskóla sem styrktir eru af Reykjavíkurborg. Þá annast sviðið umsjón og eftirlit með þjónustusamningi við þjónustumiðstöðvar í hverfum vegna sérfræðiþjónustu til leik- og grunnskólabarna og frístundaráðgjöf. Jafnframt hefur sviðið eftirlit með daggæslu í heimahúsum. Þjónusta sviðsins nær til rúmlega 20.000 barna og fjölskyldna þeirra. Á sviðinu starfar hátt á fimmta þúsund starfsmanna. Markmiðið með stofnun skóla- og frístundasviðs á sínum tíma, voru: Að tryggja heildstæða þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra; að stuðla að sameiginlegri stefnumótun leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva í hverfum borgarinnar og auka þverfaglegt samstarf og að efla yfirsýn yfir málaflokkinn og auka hagkvæmni í rekstri starfseininga.
Hér má lesa starfsáætlun í flettiútgáfu.