Stjórnendur á skóla- og frístundasviði fjölmenntu á málþing í Ingunnarskóla í dag til að kynna sér hvernig undirbúa megi betur starfsþróunarsamtöl og fylgja þeim eftir.
Málþingið hófst á því að Ásgeir Björgvinsson frá Tölfræði- og rannsóknarþjónustu sviðsins kynnti niðurstöður nýrrar könnunar sem gerð var nú í janúar meðal stjórnenda um starfsþróunarsamtöl. Í henni kom m.a. fram að tæplega 80% stjórnenda á sviðinu tóku starfsþróunarviðtal einu sinni á ári. Viðtalið stóð að jafnaði í eina klukkustund. 51% stjórnenda finnst samtölin gagnleg, en 36% þeirra fannst ganga frekar illa að fylgja eftir markmiðum sem sett voru í starfsþróunarsamtalinu.
Að erindi Ásgeirs loknu fjölluðu þrír stjórnendur um reynslu sína af því að taka starfsþróunarsamtöl í leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöð og veltu vöngum yfir því hvort þau hefðu skilað sér í betri árangri og aukinni starfsánægju. Helga Jóhanna Oddsdóttir, markþjálfi hjá CarpeDiem, fjallaði að lokum um nýjar áherslur í starfsmannasamtölum og hvernig mætti skerpa á markmiðum í þeim og flétta saman við stefnumið vinnustaðarins.
Málþinginu lauk með hópastarfi og skemmtilegum umræðum þar sem málþingsgestir köstuðu á milli sín ýmsum hugmyndum um hvernig bæta mætti starfsþróunarsamtölin og eftirfylgni með þeim.