Starfsáætlun Menningar- og ferðamálasviðs 2013

Menning og listir

""

Starfsáætlun Menningar- og ferðamálasviðs fyrir árið 2013 er komin út. Yfirskrift Menningar- og ferðamálasviðs er að þessu sinni Gestrisin borg. Árið markar skemmtileg tímamót í starfi þriggja stofnana sviðsins þar sem Borgarbókasafn Reykjavíkur fagnar 90 ára afmæli, Listasafn Reykjavíkur minnist þess að 40 ár eru liðin frá því að myndlistin eignaðist heimili á Kjarvalsstöðum og Menningarmiðstöðin Gerðuberg heldur upp á 30 viðburðarík ár. Það er því sérstakt tilefni til að bjóða af rausnarskap í bæinn og munu starfsmenn Menningar- og ferðamálasviðs taka einstaklega vel á móti gestum - hvort sem þeir koma í leit að fróðleik, listupplifun, afþreyingu eða til að fá sköpunargleði sinni útrás.

 

Starfsáætlunina má hér finna á rafrænu formi en prentuð eintök munu jafnframt liggja frammi á stofnunum Menningar- og ferðamálasviðs innan skamms.

 

Starfsáætlun Menningar- og ferðamálasviðs 2013 – Gestrisin borg