Sópa og þvo götur, gangstéttar og hjólastíga

„Já, við erum byrjuð að sópa götur, gangstéttar og stíga í íbúðahverfunum“, segir Guðni Hannesson yfirverkstjóri á Þjónustumiðstöð Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar aðspurður um vorverkin.

Í þessari viku hefur verið unnið í hverfunum Túnum, Teigum, Laugarási og Vogum, svo nokkrir staðir séu nefndir.   „Af hverju er aldrei byrjað hér hjá okkur?“  er spurning sem Guðni fær oft frá íbúum. Hann segir að það vera breytilegt hvar sé byrjað og þetta jafnist því út þegar horft er til lengri tíma. „Í fyrra byrjuðum við í Vesturbænum og enduðum í Breiðholtinu.  Nú get ég lofað því að Breiðholtið verður ekki síðast,“ segir hann.  

Fara þarf tvær yfirferðir. Í þeirri fyrri er eingöngu grófsópað, en í þeirri seinni bæði sópað og þvegið með háþrýstidælum. Verkið tekur um níu vikur og eru til verksins notaðir 10 stórir götusópar og jafnmargir minni sópar sem fara á gangstéttarnar og stígana.  Þá koma 3 götuþvottabílar til liðs í seinni yfirferðinni.  Skilti eru sett upp og dreifibréf fara í hús þegar kemur að þvottinum og eru íbúar beðnir um að gefa hreinsunartækjum svigrúm með því að færa bíla þegar að því kemur. 

Hreinsun  á að vera lokið í fyrstu viku júnímánaðar . Við verðum að sjálfsögðu  að hafa fyrirvara á okkar áætlunum, segir Guðni og bendir á að í næstu viku sé spáð kólnandi veðri og það geti sett strik í reikninginn.

 

Hreinsunaráætlun (með fyrirvara um tímasetningar).

 

Vika

Hverfi

14 - 17

Fossvogur, Gerði, Leiti, Vogar, Tún, Holt

14 - 17

Teigar, Lækir, Grunnar, Sund, Heimar

16 - 19

Seljahverfi, Norðlingaholt, Selás,

16 - 19

Hlíðar, Ánanaust að Lönguhlíð og að Nóatúni

18 - 21

Hólar, Fell, Berg og Bakkar, Nes, Melar, Grandi

18 - 21

Kvíslar, Árbær, Iðnhöfðar, Tún, Holt, Hlíðar

20 - 23

Grafarholt, Grafarvogur, Húsa- og Bryggjuhverfi

22 - 23

Vegagerðin - þjóðvegir

 

Fyrir páska viðraði vel og var þá lokið við að hreinsa hjóla- og göngustíga milli hverfa og mæltist það mjög vel fyrir. Sjá eldri frétt:  Göngu- og hjólastígar sópaðir í veðurblíðunni.



Ábendingar frá borgarbúum um hreinsun eru að sjálfsögðu ávallt vel þegar og er rétt að vekja athygli á ábendingavef sem er sérsniðinn fyrir ábendingar um þjónustu í borgarlandinu. Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/borgarland.