Sölustarfsemi á borgarhátíðum

Mannlíf

""

Á undanförnum árum hefur sölustarfsemi utanhúss á torgum aukist og til að mæta breyttum áherslum voru reglur um götu- og torgsölu í Reykjavík endurnýjaðar í lok síðasta árs. Þessum reglum er ætlað að hlúa að lífi í borginni og auka við fjölbreytni í starfsemi og þjónustu, en einnig eiga þær að tryggja að sölustarfsemin sé í sátt við nærumhverfi sitt og mikil áhersla er lögð á góða umgengni söluaðila.

Reglurnar ná einnig til borgarhátíða svo sem  Hinsegin daga og Menningarnætur, sem þýðir að þá er öll sölustarfsemi á götum úti eða annars staðar á borgarlandinu leyfisskyld.  Útbúið hefur verið sérstakt umsóknarferli fyrir slíkar óskir og er umsóknareyðublað aðgengilegt á vefsíðunni www.reykjavik.is/gotuogtorgsala.  Aðstandendur Hinsegin daga hafa einir leyfi til sölu á varningi og þjónustu á sinni hátíð, en Reykjavíkurborg sér um leyfisveitingar vegna matarvagna á sérstökum sölusvæðum. Vakin er athygli á að matarvagnar verða að hafa starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur er umsjónaraðili götu- og torgsölu og sér um leyfisveitingar, eftirlit og upplýsingagjöf.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni www.reykjavik.is/gotuogtorgsala