Sólborg verður SMT-leikskóli

Skóli og frístund

""

Tímamót urðu í sögu leikskólans Sólborgar þegar innleiðingu á aðferðum SMT skólafærni  lauk, en sú hugmyndafræði byggir á forvörnum við óæskilegri hegðun með því að kenna og þjálfa félagsfærni.

Börn og starfsfólk í leikskólanum Sólborg fögnuðu því á dögunum að lokið var við innleiðingu á aðferðum SMT Skólafærni , en skólinn telst þá formlega vera Smt-leikskóli eins og fagurgulur fáni ber merki um. Sólborg er fyrsti leikskóli borgarinnar til að innleiða þessa hugmyndafræði sem leggur áherslu á að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.

Hugmyndafræðin byggir á forvörnum og gengur út á að koma í veg fyrir og draga úr óæskilegri hegðun með því að kenna og þjálfa félagsfærni, gefa jákvæðri hegðun gaum með markvissum hætti og samræma viðbrögð starfsfólks.

Stjórnendur Sólborgar heilluðust af hugmyndfræði og aðferðum SMT þar sem um er að ræða jákvæðar heildarlausnir fyrir allan barnahópinn, aðferðir sem veita  starfsfólki öryggi við þjálfun félagsfærni og hagnýt verkfæri til að styðja foreldra í uppeldishlutverki sínu.

Við sama tækifæri og leikskólinn varð SMT-leikskóli var afhjúpuð mynd af einkunnarorðum skólans sem eru Virðing, leikni og samvinna.