Það ríkti notaleg stemmning á Fellafest sem haldið var síðasta laugardag í Fellagörðum í Breiðholti, en þar hefur hópurinn sem byggði upp Hjartagarðinn síðasta sumar hreiðrað um sig og er að hefjast handa við uppbyggingu á svæðinu. Fjöldi gesta, þar á meðal Jón Gnarr borgarstjóri, kíktu í Fellagarðana þennan dag. Gestir gátu tekið þátt í þrifum, komið hugmyndum á framfæri, fengið sér grillaðar pylsur, hlýtt á tónlist og horft á danssýningu svo fátt eitt sé nefnt.
Ágæt aðsókn var að viðburðinum og veruleg breyting varð á ásýnd svæðisins til hins betra. Að sögn Tönyu Pollock í Fellagarðshópnum tókst viðburðurinn mjög vel og allir mættu með sól í hjarta. Fyrirhugað er að halda fleiri Fellafest í júlí og ágúst.
Hér er fésbókarsíða Fellagarðshópsins.