Snorri Heimisson hefur verið ráðinn stjórnandi Skólahljómsveitar Árbæjar og Breiðholts. Hann tekur við starfinu 1. ágúst.
Snorri er blásarakennari frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og er með framhaldsmenntun frá Konunglega Konservatoríinu í Kaupmannahöfn. Hann hefur leikið með ýmsum hljómsveitum og kammerhópum.
Snorri stjórnaði m.a. Lúðrasveit Verkalýðsins í fjögur ár og hefur undanfarin ár starfað sem kennari við Skólahljómsveit Grafarvogs.
Sex umsækjendur voru um stöðu stjórnanda við skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts;
Annamaria Lopa
Anna Sveinbjörnsdóttir
Brjánn Ingason
Eggert Björgvinsson
Hjálmar Sigurbjörnsson
Snorri Heimisson