Á vegum Reykjavíkurborgar var unnið í alla nótt við snjóhreinsun. Mikill vindur var í efri byggðum og skóf stöðugt á ákveðnum stöðum svo sem á Víkurvegi sem varð strax ófær ef ekki var mokað stöðugt.
Um fjögur í nótt fóru svo öll tæki út. Snemma í morgun byrjaði að rigna og spáð er hlýindum í dag en um helgina á að frysta á ný. Í dag verður unnið áfram einkum í húsagötum til að ná sem mestu burt áður en frystir.
Nánari upplýsingar: Snjóhreinsun og hálkuvarnir.