Snjóvaktin í viðbragðsstöðu

Snjóhreinsun hefur gengið vel í dag og er staðan nokkuð góð og tíðindalaus. Í morgun voru saltaðar stofnleiðir og helstu strætisvagnaleiðir.



Einnig var unnið við að ryðja snjó í húsagötum í Beiðholti en sú vinna gengur hægt því eins og búast má við á sunnudegi er mörgum bílum lagt við göturnar og snjóruðningstæki komast því hægar yfir en ella og sums staðar ekki.

Traktorarnir sem Reykjavíkurborg festi kaup á í haust hafa nýst frábærlega og eru í dag að sanda göngustíga í efri hverfum.

Starfsmenn Reykjavíkurborgar sem standa snjóvaktina fylgjast vel með veðri og aðstæðum. Þeir eru tilbúir að fara út í nótt og gera þá til dæmis stofnanalóðir tilbúnar áður en starfsmenn þar mæta til vinnu. Það er vissulega með þeim fyrirvara að aðstæður séu hagstæðar og allt gangi eftir áætlun.

Á álagstímum eru íbúar beðnir um að sýna skilning. Allar ábendingar um það sem betur má fara við snjóhreinsun eru vel þegnar inn á vefinn www.reykjavik.is/borgarland. 

 

ÍTAREFNI:



Kort - Snjóhreinsun og hálkueyðing gatna.

Kort - Snjóhreinsun og söndun gönguleiða.

Tengd frétt: Rösklega brugðist við í snjóhreinsun.