Slökkt á götulýsingu vegna norðurljósa

""

Slökkt verður á götulýsingu í fjórum hverfum Reykjavíkur í kvöld vegna frábærrar norðurljósaspár Veðurstofu Íslands. Myrkvunin mun eiga sér stað á milli kl. 21:30 og 22:00 og verður slökkt á lýsingu í  Öskjuhlíð, Grafarholti, Skólavörðuholti og Breiðholti-Seljahverfi. 

Reykvíkingum ætti því að gefast frábært tækifæri á því að sjá einstaka norðurljósasýningu á þessum stöðum í kvöld og eru íbúar hvattir til að taka þátt og slökkva ljósin í íbúðarhúsum sínum líka svo myrkvunin verði sem mest og ljósmengun sem minnst nema frá hinu frábæra sjónarspili í himinhvolfinu ef aðstæður verða réttar.

Myrkvunin er gerð í samráði við lögreglu, slökkvilið og Orkuveitu Reykjavíkur. Fólk er hvatt til að aka einstaklega varlega á þessum svæðum og sýna tillitssemi á meðan myrkvun stendur. Reykjavíkurborg vill einnig minna fólk á hin frábæru útivistarsvæði í nágrenni borgarinnar, t.a.m. Heiðmörk og Hólmsheiði þar sem hægt er að njóta norðurljósa enn betur. Takið með ykkur nesti og nýja skó.