Dagur B. Eggertsson formaður borgarráðs afhenti Skyttunum þremur styrk úr minningarsjóði Gunnars Thoroddsen fyrrverandi borgarstjóra. Skytturnar þrjár, eru ungar stúlkur sem berjast fyrir aðgengi fatlaðra og heita Áslaug Ýr Hjartardóttir, systir hennar Snædís Rán Hjartardóttir og Helga Dögg Heimisdóttir.
Þær eru allar félagsmenn í Blindrafélaginu og tvær þeirra bundnar við hjólastól. Síðastliðið sumar könnuðu þær aðgengi fyrir fatlaða á Laugaveginum og þræddu götuna alla leið niður á Ingólfstorg. Á leiðinni rákust þær á ýmsar hindranir – eins og til dæmis illvíga þröskulda, tröppur verslana, óaðgengileg umferðarljós og óteljandi auglýsingaskilti. Þessar hindranir skráðu þær hjá sér og skrifuðu síðan skýrslu um það sem þær lærðu og upplifðu um aðgengismál á Laugaveginum. Að því loknu pöntuðu þær viðtal við borgarstjóra og afhentu honum skýrsluna.
Dagur sagði við athöfnina að skytturnar þrjár væru frumkvöðlar. „Skýrslan ykkar er búin að vera ómetanlegt gagn til að styðjast við – því við hjá borginni viljum svo sannarlega bæta aðgengi fatlaðra í Reykjavík. Þið ákváðuð að berjast fyrir bættum aðgengismálum í borginni og gerðuð það á jákvæðan, lifandi og skemmtilegan hátt. “
Minningarsjóður Gunnars Thoroddsen var stofnaður af hjónunum Bentu og Valgarði Briem 29. desember 1985 þegar liðin voru 75 ár frá fæðingu Gunnars. Styrkurinn sem er að upphæð 350.000 krónur var veittur við hátíðlega athöfn í Höfða. Þetta er í tuttugasta og sjötta sinn sem veitt er úr minningarsjóðnum og hafa styrkþegar bæði verið félagasamtök og einstaklingar.