Skuggaskógur í Öskjuhlíð

Mannlíf Menning og listir

""

Ljós og skuggar einkenna Vetrarhátíð í ár sem aldrei áður. Fjölda ljóstengdra viðburða má finna um alla borg allt frá rótum Bláfjalla þar sem hinn magnaði Eldborgargígur verður lýstur í myrkrinu niður að botni Vesturbæjarlaugar þar sem listakonan Kitty von Sometime verður með Norðurljósapartý.

Vissirðu að Öskjuhlíð var einu sinni eyja?

Skuggaskógurinn í Öskjuhlíð er ljósaviðburður sem enginn má láta framhjá sér fara um helgina. Þar mun arkítektinn Massimo Santaniccha í samtarfi við nemendur í Listaháskóla Íslands, Skógræktarfélag Reykjavíkur og Osram bjóða upp á spennandi ævintýraferð um kynjaveröld Öskjuhlíðar sem hefst við Nauthól á hverju kvöldi klukkan 18.00 og 20.00 og endar við Perluna um klukkustund síðar.

Á göngunni má sjá fallegar ljósainnsetningar sem gefa skóginum nýja ásjónu í samspili ljóss og skugga en auk þess leiðir fræðslufulltrúi frá skógræktarfélaginu  gönguna og segir frá ævintýrum skógarins en þetta svæði var eyja fyrir 1000 árum síðan.

Skuggaskógurinn hefur það að markmiði að vekja fólk til umhugsunar um hið nána samband milli manns og náttúru, milli ljóss og skugga og hvetja það til að meta hlýjuna, kyrrð skugganna og vetrarmyrkurs.

Síðast en ekki síst geta gestir Vetrarhátíðar notið á hverju kvöldi hins stórbrotna ljósaverks „PIXEL CLOUD“ eftir arkítektinn Marcos Zotes sem breytir Austurvelli í magnaða upplifun ljóss, lita og hreyfingar.

Dagskrá Vetrarhátíðar.