Skráning hafin í Haustsmiðju kennara 2013
Haustsmiðja kennara verður dagana 12. og 13. ágúst, áður en kennsla hefst í grunnskólum. Að þessu sinni eru 20 áhugaverð námskeið í boði og geta kennara valið að taka þátt í einu eða fleiri námskeiðum. Skráning er hafin og stendur til 15. júní.
Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um öll námskeiðin sem eru í boði. Skoðið vel áður en farið er inn á skráningarvefinn.
Athugið að greiða þarf 1500 kr. staðfestingargjald fyrir hvert námskeið.
Skráningarvefur.
Greinabundin námskeið
1. Íslenska
Fjallað verður um megin áherslur aðalnámskrár í íslensku. Áhersla verður á kennsluhætti á öllum aldursstigum. Rætt um samþættingu íslenskukennslu við grunnþætti menntunar, um hæfniviðmið fyrir íslensku og námsmat í lykilhæfni o.fl.
Ætlað: Öllum kennurum.
Staðsetning: Réttarholtsskóli
Markmið: Að þátttakendur fái innsýn inn í þær nýjungar sem eru í nýrri aðalnámskrá grunnskóla og tengsl námssviðsins við grunnþætti menntunar.
Fyrirkomulag: Fyrirlestrar og umræður
Hámarksfjöldi þátttakenda: 30
Kennarar: Guðmundur B. Kristmundsson dósent við Menntavísindasvið HÍ.
Tími: 12. ágúst kl. 9:00 – 12:00
Stundir alls: 4
Staðfestingargjald kr. 1500
2. Kennsla í erlendum tungumálum
Fjallað verður um megin áherslur aðalnámskrár í erlendum tungumálum. Áhersla verður á kennsluhætti á öllum aldursstigum. Rætt um samþættingu kennslu í erlendum tungumálum við grunnþætti menntunar, um hæfniviðmið fyrir erlend tungumál og námsmat í lykilhæfni o.fl.
Ætlað: Tungumálakennurum.
Staðsetning: Auglýst síðar.
Kennarar: Auglýst síðar.
Tími: Auglýst síðar.
Stundir alls: Auglýst síðar
Þátttökugjald kr. 1500
3. Listir- og verkgreinar
Fjallað verður um megin áherslur aðalnámskrár í list- og verkgreinum. Áhersla verður á kennsluhætti á öllum aldursstigum. Rætt um samþættingu list-og verkgreina við grunnþætti menntunar, um sameiginleg hæfniviðmið fyrir list-og verkgreinar, hæfniviðmið o.fl.
Ætlað: List-og verkgreinakennurum
Staðsetning: Réttarholtsskóli
Markmið: Að þátttakendur kynntust áherslum í nýrri námskrá, breytingum frá eldri námskrá og veltu fyrir sér hvernig vinna mætti út frá henni, samþætta og tengja hina nýju grunnþætti markvisst inn í kennslu sinnar greinar.
Fyrirkomulag: Fyrirlestrar, hópvinna og umræður.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 25
Kennarar: Svala Jónsdóttir aðjúnkt við Menntavísindasvið HÍ.
Tími: 12. ágúst, kl. 9 - 16
Stundir alls: 8
Staðfestingargjald kr. 1500
4. Náttúrugreinar
Fjallað verður um megin áherslur aðalnámskrár í náttúrugreinum. Áhersla verður á kennsluhætti á öllum aldursstigum. Rætt um samþættingu náttúrufræði við grunnþætti menntunar, um hæfniviðmið fyrir náttúrugreinar og námsmat o.fl.
Ætlað: Kennurum á öllum stigum grunnskólum sem kenna náttúrufræði
Staðsetning: Réttarholtsskóli
Markmið: Að kennarar kynnist leiðum til að samtvinna náttúrufræðikennslu við áherslur á grunnþætti menntunar skv. aðalnámskrá.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 25
Kennarar: Haukur Arason dósent við Menntavísindasvið HÍ
Tími: 12. og 13. Kl. 8:30 – 12 báða dagana.
Stundir alls: 10
Staðfestingargjald kr. 1500
5. Skólaíþróttir
Fjallað verður um megin áherslur aðalnámskrár í skólaíþróttum. Áhersla verður á kennsluhætti og námsmat. Rætt um samþættingu íþrótta við grunnþætti menntunar, um matsviðmið o.fl.
Ætlað: Íþróttakennurum.
Staðsetning: Auglýst síðar
Kennarar: Auglýst síðar
Tími: Auglýst síðar
Stundir alls: Auglýst síðar
Staðfestingargjald kr. 1500
6. Samfélagsgreinar: Hvernig á maður eiginlega að fara að því að kenna þetta!?
Fjallað verður um megin áherslur aðalnámskrár í samfélagsgreinum. Áhersla verður á kennsluhætti og námsmat. Rætt um samþættingu samfélagsgreina við grunnþætti menntunar, um hæfniviðmið o.fl.
Ætlað: Öllum kennurum.
Staðsetning: Réttarholtsskóli
Markmið: Að smiðju lokinni geti kennarar skipulagt kennslu samfélagsgreina með grunnþætti menntunar og nýja aðalnámskrá að leiðarljósi.
Fyrirkomulag: Í smiðjunni verður lögð áhersla á hvernig nota má skapandi kennsluaðferðir í bóklegu námi. Gengið verður út frá verklegri kennslu og virkri þátttöku allra.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 30
Kennarar: Ása Helga Ragnarsdóttir aðjúnkt og Lilja M. Jónsdóttir lektor. Báðar eru kennarar við Kennaradeild Háskóla Íslands og með langa reynslu sem grunnskólakennarar.
Tími: 12. ágúst kl. 13:00 – 16:00 og 13. ágúst kl. 9:00 – 12:00
Stundir alls: 8
Staðfestingargjald kr. 1500
7. Stærðfræði
Fjallað verður um megináherslur aðalnámskrár í stærðfræði 2012. Áhersla verður lögð á að skoða hvernig kennsluhættir gætu stutt nemendur í að ná hæfniviðmiðum og hvernig meta má stærðfræðinám þeirra. Jafnframt verður hugað að því hvernig stærðfræðikennsla getur stutt við grunnþætti menntunar, læsi, jafnrétti, sjálfbærni, lýðræði og mannréttindi, velferð og heilsu og sköpun. Á námskeiðinu gefst kennurum tækifæri til að ræða um inntak námskrárinnar og hvernig þeir sjá fyrir sér innleiðingu hennar í kennslu.
Ætlað: Öllum kennurum.
Staðsetning: Réttarholtsskóli
Markmið: Að kennarar
- Þekki uppbyggingu aðalnámskrár í stærðfræði og helstu hæfniviðmið.
- Þekki dæmi um hentug viðfangsefni sem geta nýst nemendum til að ná hæfniviðmiðum í stærðfræði jafnframt því sem hugað er að grunnþáttum menntunar samkv. Aðalnámskrá grunnskóla.
- Kynnist leiðum til að meta nám út frá nýrri aðalnámskrá í stærðfræði.
Fyrirkomulag: Fyrirlestur og vinnustofa þar sem kennarar vinna verkefni í hópum út frá aldursstigum.
Hámarksfjöldi þátttakenda: Eins og húsrúm leyfir
Kennarar: Guðbjörg Pálsdóttir og Guðný Helga Gunnarsdóttir lektorar við Menntavísindasvið HÍ.
Tími: 12. ágúst kl. 12:30 – 16 og 13. ágúst kl. 8:30 - 12
Stundir alls: 10 kennslustundir
Staðfestingargjald kr. 1500
8. Upplýsinga- og tæknimennt
Fjallað verður um megin áherslur aðalnámskrár í upplýsinga- og tæknimennt. Áhersla verður á kennsluhætti og námsmat. Rætt um samþættingu í upplýsinga- og tæknimennt við grunnþætti menntunar, um matsviðmið o.fl.
Ætlað: Öllum kennurum.
Staðsetning: Réttarholtsskóli
Markmið: Á námskeiðinu kynnast þátttakendur áhugaverðum dæmum um notkun upplýsingatækni í skólum um land allt. Fjallað verður sérstaklega um samþætt verkefni, kennsluáætlanir, námsmat og fjölbreytta kennsluhætti.
Athyglinni verður jafnframt beint að völdum verkfærum á neti, námsefni á nýju formi, gerð kennsluefnis og virkri þátttöku nemenda í eigin þekkingarsköpun.
Framtíðarsýn, samfélagsmiðlar, snjalltæki og skapandi starf með börnum og unglingum verður til umfjöllunar.
Ofantalin atriði verða sett í samhengi við nýja aðalnámskrá og grunnþætti menntunar.
Fyrirkomulag: Kynningar, hagnýt og fjölbreytt verkefnavinna og umræður
Hámarksfjöldi þátttakenda: 40
Kennarar: Salvör Gissurardóttir, Sólveig Jakobsdóttir, Tryggvi Thayer og Þorbjörg Þorsteinsdóttir við Menntavísindavið H
Tími: 12. ágúst og 13. ágúst kl. 13-16
Eftirfylgd, umræður og ráðgjöf á netinu í ágúst og september
Stundir alls: 10
Staðfestingargjald: Kr. 1500
Önnur námskeið
9. Námskeið um líkamleg inngrip í mál nemenda vegna óásættalegnar og / eða skaðlegrar hegðunar.
Ætlað öllum kennurum
Kennarar: Atli F. Magnússon, atferlisfræðingur hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og Felix Högnason, atferlisfræðingur og forstöðuþroskaþjálfi á heimili í Reykjavík.
Staðsetning: Réttarholtsskóli
Markmið: Í skólastarfi getur reynst nauðsynlegt að koma í veg fyrir að nemandinn sé sjálfum sér eða öðrum hættulegur. Í þess háttar átökum er mikilvægt að starfsfólk hafi hlotið þjálfun og leiðsögn sem miðar að því að draga úr líkum á slysum á fólki, sérstakleg í ljósi þess að nemendum er hættast við að slasast í slíkum aðstæðum. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að forðast átök við nemendur í lengstu lög. Þá er lögð áhersla á að þær aðferðir sem eru kenndar séu aðeins notaðar í neyð og þá af þeim sem hlotið hafa til þess nauðsynlega þjálfun. Einnig er lögð áhersla á að starfsfólk vinni markvisst að fyrirbyggjandi aðgerðum sem draga úr líkum á átökum. Á námskeiðinu eru kennd rétt viðbrögð ef nemandi verður æstur og ræðst að starfsmanni og hvernig starfsmaður getur varist því. Farið er yfir hvernig verjast má bitum og viðbrögð við þeim, hvernig verjast má hártogi og viðbrögð við þeim, hvernig starfsmaður getur losað sig ef nemandi nær á honum taki og hvernig verjast má höggum.
Fyrirkomulag: Kennsla fer fram með verklegum æfingum og því er æskilegt að þátttakendur séu klæddir í þægileg föt t.d. æfingaföt.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 25
Tími: 12. og 13. ágúst kl. 8:30-12:30, báða dagana.
Stundir alls: 12 kennslustundir
Staðfestingargjald kr. 1500
10. Árangursrík kennsla á unglingastigi
Ætlað: Kennurum á unglingastigi.
Staðsetning: Fyrsti hluti námskeiðsins verður í Réttarholtsskóla, staðsetning síðari fræðslufunda verður tilkynnt í haust.
Markmið: Að styðja við stjórnendur og kennara við unglingastig í grunnskólum Reykjavíkur, kynna kennsluaðferðir sem athygli hafa vakið og reynst hafa vel við að koma til móts við námsþarfir unglinga og til að stuðla að innleiðingu á nýju verklagi varðandi námsmat á unglingastigi. Á námskeiðinu verða kynntar þær breytingar á námsmati á unglingastigi sem ný aðalnámskrá frá 2011 kallar á. Einnig verður fjallað um hvaða breytingar á kennsluaðferðum og vinnubrögðum ný aðalnámskrá boðar.
Leitast verður við að kynna ýmsar leiðir sem vakið hafa athygli og reynst hafa vel við að vekja og viðhalda áhuga unglinga á námi og sinna þörfum þessa aldurshóps sérstaklega. Kynntar verða aðferðir sem nýta upplýsinga- og samskiptatæknina,s.s. Spegluð kennsla (Flipped classroom), netnám, rafrænt námsmat, notkun spjaldtölva og annarra samskiptamiðla, reynsla af faghópum í íslensku, stærðfræði og náttúrufræði o.fl.
Fyrirkomulag: Námskeiðið hefst með námskeiðsdegi í ágúst og verður fram haldið með fræðslufundum haustið 2013.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 30 - 40
Kennarar: Sérfræðingar úr háskólasamfélaginu og kennarar á unglingastigi sem hafa verið brautryðjendur varðandi nýbreytni- og þróunarstarf
Tími: 12. Kl. 13:00 – 16:00 - 13. ágúst kl. 13:30 – 16:30
Stundir alls: 13
Staðfestingargjald kr. 1500
11. Hagnýt námskeið í notkun Word og PPT
Flestir þekkja Word og PowerPoint að einhverju leyti og nýta það sem þeir kunna vel en annað ekki. Hér verða kynntir ýmsir þægilegir möguleikar sem hægt er að nota í þessum forritum í daglegu starfi. Með viðbótarþekkingu í notkun þessara forrita er hægt að spara tíma og bæta framsetningu efnis til muna. Farið er ítarlega í gerð taflna, innsetningu mynda og vinnu með þær, notkun á SmartArt og Chart valmöguleikum og ýmislegt fleira.
Ætlað: Öllum kennurum
Staðsetning: Borgartún 14 – 7. hæð, Hrafnhólar (tölvukennslustofa)
Kennari: Guðrún Hjartardóttir, verkefnastóri á skrifstofu Skóla-og frístundasviðs .
Markmið: Að víkka út þekkingu á notkun Word og PPT
Fyrirkomulag: Kennsla og vinna við tölvur, stuttar leiðbeiningar og fyrirlestur.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 13
Tími: 12. ágúst, kl. 8:30-12:00
Stundir alls: 5
Staðfestingargjald kr. 1500
12. Hagnýt námskeið í notkun Word og PPT (sama námskeið og nr. 12)
Flestir þekkja Word og PowerPoint að einhverju leyti og nýta það sem þeir kunna vel en annað ekki. Hér verða kynntir ýmsir þægilegir möguleikar sem hægt er að nota í þessum forritum í daglegu starfi. Með viðbótarþekkingu í notkun þessara forrita er hægt að spara tíma og bæta framsetningu efnis til muna. Farið er ítarlega í gerð taflna, innsetningu mynda og vinnu með þær, notkun á SmartArt og Chart valmöguleikum og ýmislegt fleira.
Ætlað: Öllum kennurum
Staðsetning: Borgartún 14 – 7. hæð, Hrafnhólar (tölvukennslustofa)
Kennari: Guðrún Hjartardóttir, verkefnastóri á skrifstofu Skóla-og frístundasviðs .
Markmið: Að víkka út þekkingu á notkun Word og PPT
Fyrirkomulag: Kennsla og vinna við tölvur, stuttar leiðbeiningar og fyrirlestur.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 13
Tími: 13. ágúst kl. 8:30-12:00
Stundir alls: 5
Staðfestingargjald kr. 1500
13. Stuttmyndasmiðja
Ætlað: Öllum kennurum.
Þátttakendur gera stuttmynd frá handriti til fullbúinnar stuttmyndar.Smiðjan stendur yfir í fjóra daga. Fyrir hádegi hvern dag fræðir sérfræðingur á hverju sviði þátttakendur, ræðir við þá og deilir reynslu sinni.Eftir fyrirlesturinn fyrsta daginn verður þátttakendum skipt í hópa og þeir sjálfir byrja að vinna að stuttmynd sem þeir ljúka á síðasta degi.
Fyrirlesarar: Fagfólk úr íslenskri kvikmyndagerð.
Staðsetning: Háaleitisskóli v/Stóragerði (áður Hvassaleitisskóli).
Markmið: Kennarar verði í stakk búnir til að vinna stuttmyndaverkefni með nemendum sínum.
Fyrirkomulag: Hópurinn hittist í fjögur skipti.Tveir dagar verða dagana 12. og 13. ágúst en tveir dagar tilkynntir síðar. Ath!Fyrirlestur verður fyrir hádegi og síðan verður hópavinna eftir hádegi. Seinni hluti námskeiðsins fer síðan fram í september og verður unnið að klippingu í tvo daga eftir hádegi.Tilkynnt nánar um það síðar.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 15
Kennarar: Lárus Ýmir Óskarsson, Jón Atli Jónasson, Erla Stefánsdóttir og Marteinn Sigurgeirsson
Stundir alls: 20
Tími: 12. og 13. ágúst frá kl. 9-15.Seinni hluti auglýstur síðar.
Dagur 1:
Handritsgerð: Jón Atli Jónasson (Djúpið, Falskur fugl,Frost).
Hópurinn skrifar handrit að stuttmynd.
Dagur 2:
Leikstjórn : Lárus Ýmir Óskarsson (Ryð, sjónvarpsseríur) verður með fyrirlestur og leiðsögn.
Tökur hefjast.
Dagur 3:
Klipping/eftirvinnsla: Erla Stefánsdóttir í Myndveri grunnskóla leiðbeinir.
Tökum lýkur, myndin er klippt og gerð tilbúin til sýningar.
Á þessum fyrirlestrartíma (og utan hans) verða líka veittar hagnýtar upplýsingar og fróðleikur frá starfsmönnum Myndvers grunnskólanna, Marteini Sigurgeirssyni og Erlu Stefánsdóttur og þau verða þátttakendum til halds og trausts ef á þarf að halda.
Vanti hópa tæki til kvikmyndagerðar, vél til að taka upp eða tölvu til að klippa, munu starfsmenn Myndversins bjarga því við.
Þátttökugjald: kr. 8600, þar af staðfestingagjald kr. 1500
14. Innri styrkur kennarans
Ætlað: Öllum kennurum.
Að efla persónulegan styrk kennarans með styrkleika- og markþjálfun. Þátttakendur fá kynningu á því hvað felst í styrkleikanálgun og hvernig nota má eigin styrkleika til að bæta líðan í hlutverki kennarans. Einnig fá þeir hagnýt verkfæri sem mæla eigin styrkleika og ræða þá í jafningjahópi. Að auki fá þeir kynningu á þeim möguleikum sem felast í því að nota markþjálfun sem tæki til að vinna að persónulegum vexti og eflast í starfi sem fagmenn.
Staðsetning: Borgartún 12, Kerhólar 7. hæð.
Kennarar: Guðrún Snorradóttir mannauðsráðgjafi og Ingibjörg Kaldalóns markþjálfi og kennari við Menntavísindasvið HÍ.
Markmið: Að kynna kennurum árangursríkar leiðir til sjálfseflingar og skýrari sýn á eigin styrkleika.
Fyrirkomulag: Hagnýtt námskeið með áherslu á virka þátttöku og umræður.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 20
Tími: 19. september kl. 14:15 – 16:15.
Stundir alls: 3
Þátttökugjald: kr. 4.000 þar af staðfestingargjald kr. 1500.
15. Aðstaða, búnaður og áhöld í skógartengdu útinámi
Ætlað: Leik- og grunnskólakennurum í skólum sem hafa gert samning við Reykjavíkurborg um grenndarsvæði.
Fjallað um aðstæður til útináms, búnað og áhöld í skógartengdu útinámi.
Heill námskeiðsdagur með miklu „þátttökunámi“. Í lokin taka þátttakendur með sér heim áhöld og búnað sem nýst getur í útinámi skólans.
Kennari: Ólafur Oddsson, Óskar Baldursson.
Staðsetning: Grenndarskógur Ártúnsskóla.
Tími: 12. ágúst kl. 8:30 – 16:00
Staðfestingagjald kr. 1.500
16. „Tónlist skógarins“ (List – og verkgreinar)
Samþætt skógartengt útinám í 3. og 6. bekk með áherslu á tónmennt, smíði og náttúrufræði. Á námskeiðinu er fjallað um reynslu af verkefninu í Ártúnsskóla vorið 2013 og þátttakendur fá innsýn inn í verklega þætti verkefnisins.
Ætlað: Kennurum sem kenna í 3. til 6. bekk.
Kennarar: Sesselja Guðmundsdóttir, Trausti Jónsson og Ólafur Oddsson
Staðsetning: Í grenndarskógi Ártúnsskóla
Tími: 13. ágúst 2013 kl. 8:30 – 16:00
Staðfestingagjald kr. 7.000 (miðað við 12 þátttakendur) þar af 1.500 staðfestingagjald.
17. Heimspekileg samræða og grunnþættir menntunar
Fjallað verður um fræðilegan bakgrunn heimspekilegrar samræðu og hún tengd við grunnþætti menntunar. Kennarar verða þjálfaðir í að beita heimspekilegri samræðu í skólastofunni með verklegum æfingum, umræðum og kennslufræðilegum skýringum. Þátttakendur framkvæma þrjú samræðuverkefni í eigin kennslu á tímabilinu sept. – nóv. 2013, fá ráðgjöf, handleiðslu og jafningjastuðning.
Ætlað: Öllum kennurum.
Staðsetning: Réttarholtsskóli.
Markmið: Að þjálfa grunnskólakennara til að beita heimspekilegri samræðu í skólastofunni.
Fyrirkomulag: Námskeiðsdagur 12. ágúst, heimavinna og tveir hálfir námskeiðsdagar í okt. – des. 2013.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 30.
Kennarar: Jóhanna Kristín Guðmundsdóttir og Jóhanna G. Ólafsdóttir, kennarar hjá Hagnýtri heimspeki.
Tími: Hefst 12. ágúst kl. 9 – 16 og tveir hálfir námskeiðsdagar í okt. – des. 2013
Stundir alls: 24 klst.
Þátttökugjald kr. 12.500 (miðast við 20 þátttakendur og gæti því lækkað ) þar af kr. 1500 staðfestingargjald.
18. Staðalmyndir, stelpur, strákar og við öll hin...
Hádegisverðarfundur um staðalmyndir og tækifæri í jafnréttismenntun með tilkomu nýrrar aðalnámskrár. Fyrirlesarar benda á leiðir til að skora staðalmyndir á hólm með því að snúa auglýsingum á hvolf, ögra ríkjandi viðmiðum og flétta jafnréttisfræðslu saman við skólastarf.
Ætlað: Öllum kennurum.
Staðsetning: Réttarholtsskóli
Markmið: Að vekja ígrundun og umræðu um jafnréttis- og kynjafræðinám en eins og fram kemur í nýrri aðalnámskrá 2011 er jafnrétti einn af grunnþáttum menntunar. Í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla eru skýr ákvæði um að á öllum skólastigum skulu nemendur hljóta fræðslu um jafnréttismál þar sem m.a. sé lögð áhersla á að búa bæði kynin undir jafna þátttöku í samfélaginu.
Fyrirkomulag: Hádegisverðarfundur. Flutt verða tvö erindi sem fylgt verður eftir með umræðum. Samlokur, ávextir og drykkir í boði.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 60
Valdir fyrirlesarar með sérþekkingu í málaflokknum. Nöfn þeirra verða auglýst síðar.
Tími: 13. ágúst kl. 12:00 – 13:30.
Stundir alls: 2 stundir.
Staðfestingargjald kr. 1500.
19. Margbreytilegur nemendahópur sveigjanlegt námsumhverfi
Kynntar verða leiðir í kennslu sem reynst hafa gagnlegar og virkað vel í skóla án aðgreiningar og í margbreytilegum nemendahópi.
Ætlað: Öllum kennurum
Staðsetning: Auglýst síðar
Kennarar: Auglýst síðar.
Tími: Auglýst síðar. Gert er ráð fyrir fjórum hálfum námskeiðsdögum sem dreifast yfir skólaárið. Stefnt er að því að byrja í Haustsmiðju.
Stundir alls: Auglýst síðar
Staðfestingargjald kr. 1500
20. Biophilia
Markmið námskeiðsins er að gera viðkomandi skólum kleift að vera með þemaviku í Biophilia á haustönn fyrir miðstig. Í skólum sem hafa eingöngu unglingastig getur þemavikan verið fyrir 8. bekk. Skólarnir fá afnot verkfærakistu sem inniheldur ipada og tilheyrandi kennslugögn meðan á þemavikunni stendur. Námskeiðið er skilyrði fyrir láni á verkfærakistunni.
Ætlað: Þriggja manna hópum frá hverjum skóla, einum tónmenntakennara (eða staðgengli hans), einum náttúrufræðikennara auk þriðja kennara.
Staðsetning: Réttarholtsskóli
Tími: 12. og 13 ágúst kl. 13 – 16 báða dagana.
Umsjón og kennsla: Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir verkefnisstjóri Biophilia verkefnisins ásamt þjálfuðum Biophilia kennurum.
Fyrirkomulag: Þátttakendur munu læra að nota efni og gögn sem tilheyra Biophila verkefninu, í samræmi við kennsluáætlun sem liggur fyrir. Unnið verður með tónlist Bjarkar Guðmundsdóttur Biophilia og hún tengd við náttúrufræði en einnig við aðrar greinar s.s. íslensku.
Stundir alls: 8 stundir
Námskeiðið verður endurtekið á vorönn 2013.
Staðfestingargjald: kr. 1500