Skólakæfa frá SS innkölluð
Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
Efni: Skólakæfa frá SS innkölluð af markaði vegna framleiðslugalla.
Matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hafa borist upplýsingar frá Matvælastofnun um innköllun af markaði á ákveðnum lotunúmerum af skólakæfu frá SS vegna þess að varan fékk ekki næga hitameðhöndlun í framleiðslu.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem verið er að innkalla:
Vörumerki: SS.
Vöruheiti: Skólakæfa.
Framleiðandi: Sláturfélag Suðurlands.
Nettóþyngd: 200 g.
Lotunúmer: 01-014 (pökkunardagur 23.01.2013 og best fyrir 22.02.2013) og 02-014 (pökkunardagur 25.01.2013 og best fyrir 24.02.2013).
Dreifing: Um allt land.
Sláturfélag Suðurlands biður þá sem keypt hafa umrædda vöru að farga henni eða skila til þeirrar verslunar þar sem hún var keypt og verður hún bætt með tveimur stykkjum af sömu eða annarri kæfutegund.