Skólahljómsveit Grafarvogs fékk verðlaun Nótunnar 2013

Tónlistarskólar landsins fögnuðu á dögunum uppskeru vetrarstarfsins á lokahátíð Nótunnar í Hörpu.  24 tónlistaratriði höfðu öðlast þátttökurétt á hátíðinni eftir að valnefndir höfðu sagt álit sitt á svæðistónleikum. Því var langur aðdragandi fyrir margan að komast á sviðið í Hörpu.

Skólahljómsveit Grafarvogs – C sveit - var meðal níu atriða sem fengu verðlaun fyrir frábæra frammistöðu á hátíðinni. Einar Jónsson stýrði flutningi sveitarinnar á verkinu Earthdance eftir Michael Sweeney  – og fékk sveitin viðurkenningu fyrir samleik í miðnámi. Hljómsveitin hefur verið að vinna með þetta verk í vetur og það verður með í farteskinu til Spánar í sumar, en sveitin fékk Evrópustyrk til að ferðast þangað og leika með jafnöldrum í Katalóníu í júní! Undirbúningur fyrir þá ferð er nú í fullum gangi og ljóst að C-sveitin hefur ásamt stjórnanda sínum í nógu að snúast á næstu vikum.

Nemendurnir úr Grafarvoginum hafa væntanlega farið ljómandi heim úr Hörpunni – enda hafa þau ærna ástæðu til að vera stolt af uppskerunni.

Sjá frekar á www.notan.is.