The Festival kynnir:
-Make Space Initiative-
Og þér er boðið!
Fimmtudaginn 28. febrúar til laugardagsins 2. mars munu erlendir og innlendir listamenn deila með borgarbúum verkum sínum sem unnið hefur verið að í listamannadvöl í Reykjavík síðastliðnar tvær vikur undir hatti Make Space Initiative.
Listamennirnir sem dvalið hafa hér á landi eru þær Satu Herrala frá Finnlandi, Mari Keski- Korsu frá Finnlandi, Juli Reinartz Svíþjóð/Þýskalandi og Eva Ísleifsdóttir frá Íslandi. Verkefnið er samstarfsverkefni The Festival sem er íslenskt verkefni og ANTI Festival frá Finnlandi.
Þær hafa unnið með borgarbúum að verkefnum sínum síðastliðnar tvær vikur. Sem dæmi um viðburði má nefna fyrirlestraröð í saltvatnspottinum í Laugardalslaug, flugdrekum verður flogið með það að markmiði að kæla jörðina, dans-og tónleikaverk unnið út frá Afrófútúrisma, auk þess sem „kveikt“ verður í einu húsi í miðbænum. Í september munu þær síðan halda til Kuopio í Finnlandi og sýna lokaafrakstur vinnu sínnar á ANTI Festival.
Frítt er á alla viðburði, fyrir utan að nauðsynlegt er greiða aðgangseyri að Laugardalslauginni líkt og aðrir sundiðkendur gera.
Dagskrána má finna hér fyrir neðan, sem og í viðhengi. Nánari upplýsingar um verkin og listamennina má finna á www.thefestival.is.
Verkefnið er hluti af The Nordic Residency Project sem styrkt af Kulturkontakt Nord, Nordisk Kulturfonden og Ungu fólki í Evrópu.