Skate Sultan verður haldinn í Fellagörðum á Laugardaginn 17. ágúst

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Laugardaginn 17. Ágúst frá kl 15:00 – 18:00 verður haldinn allsherja hjólabrettaveisla í samstarfi við Mohawks uppi í Fellagörðum. Þar munum við taka vel á móti alls konar brettum, hvort þau séu löng og mjó, breið eða stutt, svört eða hvít, við sýnum enga fordóma.

Það verður ekki formleg keppni en nokkur spott tekin fyrir í einu og gefin verðlaun fyrir besta trikkið, frumlegasta trikkið, asnalegasta trikkið hæsta kickflippið og allskonar aðra vitleysu.

Við endum þetta á downhill djammi niður göngustíginn á lönguvitleysunni þar sem verður búið að koma upp ýmsum hindrunum á leiðinni. Þannig allir sem geta lagt bretti undir iljar, komið og njótið dagsins með okkur.