Skapandi greinar fá húsnæði við Hlemm

Framkvæmdir Menning og listir

""

Þeir sem koma að uppbyggingu, kynningu og útflutningi á íslenskri tónlist fá fljótlega aðstöðu fyrir starfsemi sína við Hlemm, að Laugavegi 105.  Þessi nýsköpunarmiðstöð við Hlemm mun hýsa meðal annars Útón, Íslensku tónverkamiðstöðina og Iceland Airwaves. 

Á vegum Reykjavíkurborgar er nú unnið að lagfæringum á húsnæðinu og verður það afhent notendum í desember.   Húsnæðið er 275 fermetrar á jarðhæð.
 
Skrifstofa eigna og atvinnuþróunar hjá Reykjavíkurborg vann að því  í samráði við Nýsköpunarmiðstöð Íslands að finna hentugt húsnæði fyrir hinar skapandi greinar og á fundi borgarráðs í liðinni viku voru fyrirliggjandi leigusamningar samþykktir. Reykjavíkurborg leigir af Félagsbústöðum og áframleigir til Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.