Sjóða skal frosin ber vegna smithættu
Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
Efni: Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, Matvælastofnun og sóttvarnalæknir hvetja almenning til að sjóða öll frosin ber.
Á undanförnum mánuðum hafa 30 einstaklingar í Danmörku greinst með lifrarbólgu A (Hepatitis A). Grunur leikur á að einstaklingarnir hafi smitast vegna neyslu á frosnum berjum sem hafa verið notuð ósoðin í drykki (smoothies), eftirrétti og kökur. Ekki hefur enn verið hægt að benda á ákveðna tegund berja en rannsókn er í gangi.
Í ljósi þessa faraldurs sem nú er í gangi í Danmörku og með hliðsjón af neytendavernd ráðleggur danska matvælastofnunin almenningi nú að sjóða öll frosin ber sem nota á í drykki, eftirrétti og kökur. Neytendum hefur lengi verið ráðlagt að sjóða frosin hindber fyrir notkun vegna hættu á nóróveirusýkingum en nú er svo komið að ráðleggingarnar ná yfir öll frosin ber. Á umbúðum hindberja sem eru á markaði hér á landi eru ráðleggingar þar að lútandi.
Í ljósi þess að hérlendis eru sambærilegar vörur á markaði og í Danmörku og vinsælt er að nota frosin ber í drykki ráðleggur Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, Matvælastofnun og sóttvarnalæknir neytendum að sjóða öll frosin ber í minnst eina mínútu áður en þau eru notuð í drykki og aðra rétti sem ekki eru hitaðir. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, Matvælastofnun og sóttvarnalæknir munu fylgjast með málinu og birta frekari fréttir af rannsókn á uppruna smitsins þegar og ef þær berast.
Ítarefni:
Tengill á vefsíðu Matvælastofnunar: www.mast.is.
Tengill á vefsíðu sóttvarnalæknis varðandi lifrarbólgu A: http://www.landlaeknir.is/smit-og-sottvarnir/smitsjukdomar/sjukdomur/item13077/Lifrarbolga-A.