Sigurvegarar Stóru upplestrarkeppninnar
Stóra upplestrarkeppnin í Árbæ/ Grafarholti haldin í Guðríðarkirkju 21. mars
Elísabet Birta Eggertsdóttir, Sæmundarskóla var sigurvegari á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Árbæ Grafarholti sem fram fór í Guðríðarkirkju í gær. Í öðru sæti varð, Rannveig Klara Guðmundsdóttir, Sæmundarskóla, og í þriðja sæti var Elvar Örn Ármannsson, Árbæjarskóla.
Lokahátíðin er endir á löngu ferli æfinga og þjálfunar í framsögn og tjáningu sem hófst á degi íslenskrar tungu 16. nóvember sl. í öllum sex grunnskólum hverfisins, alls voru tólf nemendur 7. bekkja grunnskóla hverfisins sem tóku þátt.
Á lokahátíðinni voru tveir fulltrúar frá hverjum skóla sem lásu upp bundið og óbundið mál. Rithöfundar keppninnar í ár voru Friðrik Erlingsson og Þóra Jónsdóttir. Allir keppendur fengu viðurkenningu bókina Nokkur ljóð eftir Þóru Jónsdóttur, sundkort frá Árbæjarlaug og eina rós. Á þessari hátíð eru allir sannir sigurvegarar og það var verulega gaman að fylgjast með þessum hæfileikaríku krökkum.
Það er vert að hrósa framlagi nærumhverfisins til hátíðarinnar en Bakarí Grafarholts gaf veitingar, Nói & Siríus gáfu konfekt, Grænn Markaðu gaf rósir, Árbæjarblóm lánaði okkur skreytingar, Mjólkursamsalan gaf drykki, Árbæjarlaug sundkort og Árbæjarapótek gaf þakklætisvott til dómara.
Gyða kristmannsdóttir, kennsluráðgjafi á þjónustumiðstöðinni stýrði hátíðinni.