Sérkennileg stemning á íbúafundi í Grafarvogi
Fullt hús var á íbúafundi í Hlöðunni við Gufunesbæ í Grafarvogi í gær. Sóttu um 80 manns fundinn í þessu næststærsta hverfi borgarinnar. Fundurinn var sá síðasti af tíu í fundaröð borgarstjóra og helstu embættismanna Reykjavíkurborgar undir yfirskriftinni Betri hverfi.
Fundurinn hófst á erindi Jóns Gnarr borgarstjóra þar sem hann fór fyrst yfir helstu áherslur Reykjavíkurborgar í hverfinu og framkvæmdir, áherslur í aðalskipulagi og ýmsa tölfræði sem tengist hverfinu. Þvívnæst fór hann yfir verkefnin sem kosin voru í rafrænum íbúakosningum í fyrra en þau voru fjölmörg.
Að lokinni ræðu borgarstjóra var opnað á fyrirspurnir íbúa eins og gert hefur verið á öllum íbúafundunum í hverfum borgarinnar. Fyrsta fyrirspurnin snerist um girðingu við Engjaskóla sem var fjarlægð en af því hafði íbúi ónæði vegna ágangs skólabarna og annarra sem fara yfir lóðina. Sá vildi einnig benda á hraðakstur strætisvagna og annarra inn einstefnugötu við skólann.
Eftir það fór fyrirspurnatími íbúa í Grafarvogi mest í einræður fyrirspyrjenda sem kröfðu borgarstjóra um svör, t.a.m. við því hvort hann styddi að Grafarvogur yrði sjálfstætt sveitarfélag, upptalningu á kaupum borgarinnar á lóðum og byggingum í öðrum hverfum, kostnað við miðlæga stjórnsýslu og sameiningu skóla í Grafarvogi. Vildu fyrirspyrjendur svör strax frá borgarstjóra, virtu ekki fundarsköp og gerðu tilraun til þess að yfirtaka stjórn fundarins. Einn fyrirspyrjandi kallaði borgarstjórn „hyski sem hann vildi losna við fyrir fullt og allt úr borginni.“ Aðrir fundargestir tóku ekki undir óskir um að fundarstjórn yrði tekin yfir.
Fundarstjóri Hulda Steingrímsdóttir hélt þá sínu striki og komust nokkrar fyrirspurnir um menningarmiðstöð í Grafarvogi, öryggismál vegna umferðar við Foldaskóla og annað til skila. Embættismenn svöruðu fyrirspurnum íbúa eftir bestu getu en síðan fór borgarstjóri yfir spurningar og ábendingar sem borist höfðu. Hann lauk máli sínu með því að þakka fundargestum fyrir komuna en lét þess getið að honum hefði þótt fundurinn sérkennilegur að ýmsu leyti.
Fundarröð borgarstjóra með íbúum í hverfum borgarinnar er nú lokið og vill Reykjavíkurborg þakka íbúum fyrir ákaflega góða mætingu og málefnalega fundi.
Íbúar eru hvattir til þess að setja hugmyndir sínar að betri hverfum inn á samráðsvefinn www.betrireykjavik.is á undirvefinn Betri hverfi. Hægt er að setja inn hugmyndir til 15. febrúar nk.
Eftir það verða hugmyndirnar yfirfarnar og kostnaðarmetnar af fagteymi Reykjavíkurborgar. Á hverjum íbúafundi voru þrír íbúar kosnir til að hafa eftirlit með hugmyndum í hverfunum sínum. Munu þeir fara yfir hugmyndirnar ásamt hverfaráðum og þjónustumiðstöðvum áður en þeim verður stillt upp í rafrænar íbúakosningar í Reykjavík 14. – 19. mars nk.
Þess má geta að fréttir af öllum fundunum, fundargerðir og ræður borgarstjóra er að finna hér.
Ítarefni: