Sendinefnd World Outgames skoðar Reykjavíkurborg
Sendinefnd á vegum GLISA (Gay Lesbian International Sports Association) verður í Reykjavík dagana 26. – 27. janúar nk. til þess að skoða aðstæður í borginni vegna umsóknar Reykjavíkurborgar um að halda World Outgames 2017. Nefndin kemur hingað til lands frá Miami í Bandaríkjunum sem kemur einnig til greina sem gestgjafi leikanna.
Farið verður með fulltrúa nefndarinnar vítt og breitt um borgina, skoðuð verður íþróttaaðstaða í Laugardal , Nauthólsvíkin og aðstaða þar til sjósunds, Harpa og aðstaða þar til mannréttindaráðstefnu í tengslum við leikana, auk annarra viðkomustaða.
Auk Reykjavíkurborgar og mennta- og menningarmálaráðuneytisins tekur fjöldi aðila þátt í kynningu á borginni. Þeirra á meðal er Íþróttasamband Íslands, Íþróttabandalag Reykjavíkur, Ráðstefnuborgin Reykjavík, Saga Film, Pink Iceland, Samtökin '78 og fleiri.
Kynningin er mikilvægur liður í umsókn Reykjavíkurborgar um að fá að halda leikana árið 2017 og 28. febrúar nk. verður tilkynnt hvor borgin, Reykjavík eða Miami, verður fyrir valinu sem gestgjafi leikanna.
Kynningarmyndband sem fylgdi umsókn Reykjavíkurborg um að fá að halda leikana hér á landi árið 2017.