Sendiherrar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks kynna réttindi fatlaðs fólks fyrir notendum og Borgarstjóra.
Árið 2007 var samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks undirritaður á Íslandi.Sjö einstaklingar eru ,,Sendiherrar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks“. Þessir einstaklingar hafa kynnt samninginn. Verkefnið er samstarfsverkefni Landssamtakanna Þroskahjálpar og Fjölmenntar sem er símenntunar- og þekkingarmiðstöð. Sendiherrar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks kynna samninginn út í samfélaginu en þeir eru:
Gísli Björnsson, María Hreiðarsdóttir, Ingibjörg Rakel Bragadóttir, Ína Valsdóttir, Skúli Steinar Pétursson, Þorvarður Þorvarðarson og Þórey Rut Jóhannesdóttir. Þeir hafa kynnt samninginn víða meðal annars í skólum, ráðstefnu hjá félagsráðgjöfum og Greiningar- og ráðgjafastöð.
Miðvikudaginn 6. febrúar kynntu sendiherrarnir samninginn fyrir íbúum í þjónustukjörnum í Breiðholti og á kynningarfundinn mætti einnig Jón Gnarr Borgarstjóri ásamt fylgdarliði. Eftir kynningu sendiherrana gafst tími til fyrirspurna og spunnust upp skemmtilegar umræður, þar sem að aðgengi fyrir fatlað fólk, notendastýrð persónuleg þjónusta og ferðaþjónusta fatlaðra komu meðal annars til umræðu. Einnig gafst smá tími til að spyrja borgarstjóra. Fundarmenn voru almennt ánægðir með fundinn og kunna Sendiherrunum þakkir fyrir góða kynningu.
Framundan eru kynningar fyrir starfsmannahópa sveitarfélaga sem þess óska en Velferðaráðuneytið hefur sent út kynningabréf til ýmissa aðila um þessa þjónustu sendiherranna.