Samtökin '78 fagna 35 ára afmæli í ár
Samtökin '78 fagnar 35 ára afmæli í ár. Af þessu tilefni standa S78 fyrir SAMTAKAMÆTTINUM, „þjóðfundi“ hinsegin fólks þann 1. júní. Fundurinn verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og er haldinn í samstarfi við Reykjavíkurborg með stuðningi frá Símanum. Húsið opnar klukkan 13.30, dagskrá hefst klukkan 14.00 og stendur fundurinn sjálfur til klukkan 17.30.
Mikið hefur áunnist í baráttu Samtakanna fyrir mannréttindum hinsegin fólks á síðustu áratugum og margar þeirra lagabóta sem barist hefur verið fyrir á þessu tímabili hafa komist til framkvæmda. Á fundinum verður starfsemi samtakanna skoðuð ofan í kjölinn, forgangsraðað og tekin ákvörðun um stefnumál til framtíðar.
Auk eldri og yngri félagsmanna er allt áhugafólk um málefni hinsegin fólks velkomið. Samtökin telja mikilvægt er að fá stóran og fjölbreyttan hóp þátttakenda til fundarins, því þannig verði tryggt að stefnumótun samtakanna til næstu ára taki mið af röddum mismunandi hópa. Sérstök áhersla verður lögð á að bjóða nýtt fólk velkomið. .
Að kvöldi 1. júní blása Samtökin '78 til hinsegin hátíðar sem haldin verður á Skuggabar, glæsilegum húsakynnum Hótel Borgar í miðborg Reykjavíkur. Forsala miða er hafin og fer fram í gegnum tölvupóst (skrifstofa@samtokin78.is) og síma (s: 552 7878, virka daga milli kl. 13 - 17).
Allar nánari upplýsingar má nálgast á Facebook-síðu Samtakanna '78 (www.facebook.com/samtokin78) og heimasíðu félagsins (www.samtokin78.is).