Þjónustumiðstöð Breiðholts hefur stofnað til samstarfs við netsamfelag.is um miðlun á myndefni og fréttum úr Breiðholti. Vefurinn er rekinn er af upplýsinga- og fjölmiðladeild Flensborgarskóla, en á honum má finna myndbönd af viðburðum á sviði menningar, félagsstarfs og fræða. Halldór Árni Sveinsson ritstýrir vefnum.
Breiðholt hefur nú þegar fengið sérstakt svæði á vefnum sem hægt er að skoða með því að smella á borða hægra megin á forsíðu breidholt.is. Samstarfið verður þróað áfram á komandi mánuðum.
Þjónustumiðstöð Breiðholts vill einnig gjarnan fá ábendingar um önnur myndbönd og myndefni sem er tekið upp í hverfinu og miðlað á netinu. Ábendingar um slíkt efni má senda á netfangið breidholt@reykjavik.is.