Viljayfirlýsing um rannsóknir og þróunarstarf var undirritað á dögunum á milli skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Menntavísindasviðs HÍ. Það kveður á um samstarf að verkefnum sem eiga að stuðla að faglegu, árangursríku og markvissu mennta- og frístundastarfi í borginni. Einnig á það að styrkja góð tengsl fræðasamfélagsins við það fagstarf sem unnið er á vettvangi.
Megináhersla er lögð á þróunarstarf og rannsóknir. Innan þessa rúmast verkefni af margvíslegum toga, s.s. þróunarverkefni, stuðningur við starfsþróun, úttektir, mat, ráðgjöf og fjölþættar rannsóknir. Hugmyndir að samstarfi geta komið frá hvorum aðila fyrir sig og nú þegar eru nokkur samstarfsverkefni komin á legg og önnur í burðarliðnum:
- Innleiðing aðalnámskrár í leik- og grunnskólum.
- Skil skólastiga, þróun og ráðgjöf.
- Fjölmenning.
- Mat á skóla- og frístundastarfi – sjálfsmat/innra mat og ytra mat.
- Einstaklingsmiðað nám.
- Skóli án aðgreiningar.
- PISA rannsóknin, kenningarammar og tengsl við rannsóknir á námsgreinum, s.s. fyrirhugaða íslenskurannsókn á Menntavísindasviði HÍ.
-
Upplýsingatækni- kennsluhættir og nýting upplýsingatækni í skóla- og frístundastarfi.
Ragnar Þorsteinsson, sviðsstjóri SFS, og Jón Torfi Jónasson, forseti Menntavísindasviðs HÍ undirrituðu viljayfirlýsinguna Þeir lýstu báðir yfir mikilli ánægju með þennan áfanga sem þeir töldu geta gagnast vel báðum aðilum, s.s. við stefnumótun.