Samstarf um menningu, mál og læsi í Fellahverfi

Skóli og frístund

""

Starfsfólk Fellaskóla og leikskólanna Aspar og Holts í Fellahverfi héldu sameiginlegan starfsdag og fræddust um fjölmenningarlega kennsluhætti og leiðir til að efla læsi og samræðufærni barna og unglinga.

Skólarnir þrír í Fellahverfi hafa unnið saman að þróunarverkefni sem heitir Okkar mál og fékk það styrk frá skóla- og frístundaráði á liðnu ári. Meginmarkmið verkefnisins er að auka samstarf skóla í Fellahverfi og stofnana í Breiðholti með það að leiðarljósi að efla félagslegan jöfnuð, námsárangur og vellíðan barna í hverfinu. Sérstök áhersla er lögð á vinnu með börnum með annað móðurmál en íslensku, enda er hlutfall íbúa af erlendum uppruna hátt í Fellahverfinu.  

Hátt í eitt hundrað starfsmenn þessara þriggja skóla áttu góðan og fræðandi starfsdag sem einn liður í þessu þróunarverkefni sem unnið verður að næstu fjögur árin.

Meðal fyrirlesara voru Guðrún Pétursdóttir framkvæmdastjóri InterCultural Iceland, Hallfríður Þórarinsdóttir hjá Mirru og Rannveig Oddsdóttir, kennari á Menntavísindasviði HÍ - sjá meira um fyrirlesara.