Samstarf um kennslu og frístundastarf

Skóli og frístund Íþróttir og útivist

""

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn (FHG), skóla- og frístundasvið (SFS) og Íþrótta- og tómstundasvið (ÍTR) undirrituðu Í gær, 6. júní,  samning um samstarf á sviði náttúrufræðikennslu og frístundastarfs í FHG.

Í samningum er formfest það samstarf sem lengi hefur verið á milli FHG og stofnana sem nú heyra undir SFS. Í honum felst m.a. að leik- og grunnskólar borgarinnar, auk frístundaheimila greiða ekki aðgangseyri í garðinn í tengslum við skipulagt starf sitt. Þá verður gjaldtöku einnig hætt vegna námskeiða sem boðið er upp á í garðinum. Gert er ráð fyrir aukinni samvinnu vegna fræðslu og þróunar fræðsluefnis sem og frístundastarfs og mun sérstakur stýrihópur leiða samstarfið.

Samningurinn er afrakstur starfshóps sem settur var á laggirnar í kjölfar samþykktar SFS- og ÍTR-ráða um aukið samstarf á þessu sviði. Helena Óladóttir frá SFS og Þorkell Heiðarsson frá ÍTR/FHG leiddu verkefnið.