Í dag var brotið í blað þar sem embætti landlæknis og Reykjavíkurborg gengu til samstarfs á sviði lýðheilsu. Er Reykjavík þar með fyrst sveitarfélaga til að gera samstarfssamning á því sviði. Samkomulagið gengur út að að taka upp markvisst samstarf til heilsueflingar og aukinnar lýðheilsu í Reykjavík.
Samstarfið mun beinast að þremur áherslusviðum: heilsueflandi samfélagi, heilsueflandi skólum og auknum jöfnuði.
Dagur B. Eggertsson skrifaði undir samkomulagið sem staðgengill borgarstjóra fyrir hönd Reykjavíkurborgar og Geir Gunnlaugsson landlæknir fyrir hönd Embættis Landlæknis. Var samkomulag undirritað í húsakynnum Landlæknisembættisins í Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg.
Í fyrsta kafla samkomulagsins er fjallað um heilsueflandi hverfi en embætti landlæknis mun veita sérfræðiráðgjöf í tengslum við vinnu að hverfaskipulagi Reykjavík sem þegar er hafin. Mun embættið taka þátt í samráði með íbúum hverfanna sem miðar að því að tryggja að hverfaskipulagið stuðli að heilsueflingu íbúanna.
Í öðrum kafla er fjallað um heilsueflingu í skólum en Reykjavíkurborg og Landlæknisembættið hyggjast efla lýðheilsu í skólunum og er stefnt að því að sem flestir leik, grunnskólar og frístundaheimili borgarinnar taki þátt í verkefninu fyrir lok árs 2015.
Í þriðja kafla samkomulagsins er fjallað um afleiðingar ójöfnuðar í samfélaginu á heilsufar en rannsóknir sýna að ójöfnuður er einn stærsti áhættuþátturinn varðandi sjúkdóma og vanheilsu fólks. Munu embætti landlæknis og Reykjavíkurborg vinna sameiginlega að því að greina ójöfnuð og afleiðingar hans á heilsufar og vinna tillögur um hvernig vinna megi að jöfnum tækifærum sem leiða til betri lýðheilsu alls þorra almennings.
Samkomulag Reykjavíkurborgar og Embættis landlæknis