Samhljómur í styrkjum til Vestnorrænnar samvinnu
Reykjavíkurborg er aðili að hinum Vestnorræna höfuðborgasjóði Færeyja, Grænlands og Íslands. Sjóðurinn hefur að markmiði að efla skilning og samstarf, m.a. á sviði menningarmála, milli þessara borga, íbúa þeirra, samtaka og stjórnmálamanna og veita fjárstyrki til verkefna sem þjóna þessum markmiðum.
Búið er að ákveða styrkveitingar á þessu ári en verkefnin sem styrkt eru tengjast samskiptum milli höfuðborganna og efla tengsl þeirra með uppbyggjandi hætti, t.d. á sviði menningar, fræðslu eða íþrótta.
Í ár hafði sjóðurinn yfir rúmlega 6 milljónum að ráða til verkefna sem snúa að mennta- og menningarmálum á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum.
Stjórn sjóðsins fundaði í lok maí í Nuuk á Grænlandi og ákvað eftirfarandi útnefningar til styrkja á árinu:
Kammerkór Þórshafnar og íslenski kórinn Hljómeyki fá styrk til að flytja kórverk í Hörpunni og Hallgrímskirkju. (640.000 kr.)
Frigg hátíðin fær styrk til að koma á árlegri menningar- og tónlistarhátíð í Kaupmannahöfn þar sem listamenn frá Danmörku, Færeyjum og Grænlandi sameina krafta sína. (1.280.000 kr.)
Færeyski Hafnarkórinn með Jannie Björgvin fær styrk til að flytja Messías eftir Handel í Reykjavík. (426.000 kr.)
Edvard Nyholm Debess hlýtur styrk til að halda ferna tónleika, annars vegar tvenna tónleika með Sigurði Flosasyni í Reykjavík og hins vegar tvenna tónleika með Jim Milne í Nuuk á Grænlandi. (210.000 kr.)
Grænlendingurinn Aqqaluk Petersen fær styrk til að vinna að BA-rannsókn um uppbyggingu björgunarstarfs á Íslandi, Landsbjörg, með það í huga hvort hægt er að byggja upp svipaða starfsemi á Grænlandi. (106.000 kr.)
Sundfélagið í Nuuk fær styrk til að fara til Færeyja og þjálfa og móta stefnu í málefnum sundfélagsins. Sundmenn, sem eru á líkum aldri og hafa svipaða færni í sundi, frá Þórshöfn hitta sundmenn frá Nuuk og er markmið ferðarinnar að styrkja unga hæfileikaríka sundmenn í báðum bæjum. (640.000 kr.)
Lluliaaraq fá styrk fyrir tvo til að sækja menntun og innblástur í listkennslu fyrir börn og fullorðna. Hugmyndin er að skapa fagleg tengsl við Norræna listaskóla auk þess að sækja námskeið í myndlistarkennslu í Þórshöfn á sumri komandi auk þess að sjá hvað Reykvíkingar eru að gera í listkennslu. (320.000 kr.)
NAPA eða Katja Vahl fær styrk til að halda Vestnorræna daga í Nuuk. Þetta verður í fyrsta sinn sem slíkir dagar eru haldnir á Grænlandi. Hugmyndin er að þar mætist Vestnorrænir listamenn í hinum ýmsu listgreinum, t.a.m. matargerðarlist, tónlist og kvikmyndum, svo eitthvað sé nefnt. Dagarnir verða haldnir í Nuuk dagana 13.-15. september í samvinnu við Katuaq. (1.067.000 kr.)
Kristian Frohn fær styrk fyrir Shotokan karatefélagið í Nuuk til að heimsækja sams konar félög í Þórshöfn og Reykjavík. Margir félagsmanna hafa aldrei ferðast utan Grænlands og þetta er kjörið tækifæri til að ferðast og styrkja íþróttir sem og tengsl milli landanna. (426.000 kr.)
Skákfélagið Hrókurinn fær styrk til að halda mót til minningar um Jonathan Motzfeldt. Mótinu er ætlað að styrkja skákíþróttina á Grænlandi og vináttuböndin milli Íslands og Grænlands. (742.000 kr.)
Steindór Árnason fær styrk til tónlistar- og menningarsamvinnu í Katuaq. Hópur ungmenna mun starfa í vinnusmiðju í viku og vinna með Norræna arfleið í söng og hljóðfæraleik en blanda henni jafnframt nýrri tækni. Útkomuna kynna þau svo með tónleikum í Katuaq 17. ágúst næstkomandi. Tónleikarnir eru í samvinnu við tónlistarmenn á svæðinu. (742.000 kr.)
Ólafur Egilsson hlýtur styrk til að framleiða sjónvarpsþætti, Way up north, þar sem hann sýnir líf fólks og fléttar saman örlögum og sögu landanna þriggja, Grænlands, Færeyjum og Íslandi. (416.000 kr.)
Hallgerður Hallgrímsdóttir fær styrk til að vinna að verki sem hún kallar "Föðurlandið". Hallgerður vill sýna í myndum ólík tengsl Vestnorrænna landa við Danmörk, sem þó hafa öll heyrt undir konungsríki Dana. Ísland er eitt landanna laust undan krúnunni en Grænland og Færeyjar eru með heimastjórn. Hún sýnir einnig hvernig örlög Vestnorrænu landanna og saga fléttast saman. Upptökurnar verða í Þórshöfn, Reykjavík og Nuuk og rýnir Hallgerður raunverulega atburði sem binda staðina þéttari böndum. (232.000 kr.)
Í stjórn sjóðsins sitja níu kjörnir fulltrúar, borgarstjóri og tveir borgarfulltrúar/fulltrúi sveitarfélaga frá hverjum stað. Núverandi stjórnarmeðlimir eru fyrir hönd Þórshafnar, Heðin Mortensen, borgarstjóri, Jógvan Arge og Elin Lindeskov, borgarráðsmenn, fyrir hönd Reykjavíkur, Jón Gnarr, borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi og fyrir hönd Nuuk Asii Chemnitz Narup, borgarstjóri, Per Berthelsen og Malene Lynge fulltrúar sveitarfélaga