Sameinuð skrifstofa borgarstjóra og borgarritara

""

Skrifstofa borgarstjóra og borgarritara tók formlega til starfa í byrjun árs 2013. Skrifstofan ber ábyrgð á almennri og sérhæfðri þjónustu við borgarstjóra, hefur yfirumsjón með miðlægri stoðþjónustu og samhæfingu innan stjórnsýslunnar. Starfsmenn skrifstofunnar annast skipulagningu viðburða og samskipti við borgarbúa og aðra samráðs- og hagsmunaðila innan- og utanlands ásamt því að hafa yfirumsjón með ýmsum átaks- og þróunarverkefnum sem ganga þvert á borgarkerfið. Skrifstofustjóri er Helga Björg Ragnarsdóttir og heyra eftirfarandi fimm deildir undir skrifstofuna.

Upplýsinga- og vefdeild ber ábyrgð á upplýsingamiðlun Reykjavíkurborgar og rafrænni þjónustu við íbúa. Deildin vinnur að vefþróun og ritstjórn vefsvæða borgarinnar í samstafi við svið og skrifstofur borgarinnar. Hún flytur fréttir af öllum helstu málefnum Reykjavíkurborgar, sendir fréttatilkynningar á fjölmiðla og svarar öllum fjölmiðlafyrirspurnum sem berast til borgarkerfisins. Deildin er ráðgefandi varðandi útgáfumál, auglýsingamál, kynningarherferðir, fundaherferðir, blaðamannafundi og samskipti við fjölmiðla. Deildin vinnur í nánu samstarfi við svið og skrifstofur borgarinnar. Deildarstjóri upplýsinga- og vefdeildar er Bjarni Brynjólfsson.

Mannauðsdeild hefur yfirumsjón með mannauðsmálum Reykjavíkurborgar og stuðlar að því að mannauðsþjónusta borgarinnar styðji við stefnu og megináherslur borgaryfirvalda. Starfsmenn deildarinnar hafa umsjón og eftirlit með framkvæmd starfsmannastefnu, tryggja samræmi í framkvæmd og veita stjórnendum ráðgjöf. Auk þess annast deildin mannauðsþjónustu fyrir miðlæga stjórnsýslu í Ráðhúsi og kemur að gerð kjarasamninga. Deildin vinnur í samstarfi við stjórnendur og mannauðsþjónustu sviða með það að markmiði að auka skilvirkni og gæði þjónustunnar og leggja grunn að góðri vinnustaðamenningu. Deildarstjóri mannauðsdeildar er Árni Ragnar Stefánsson.

Tölfræði og greining ber ábyrgð á greiningu og birtingu tölfræðilegra upplýsinga og sinnir álitsgjöf um efnahags- og atvinnumál. Þá leggur deildin fram hagrænar forsendur fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar og þriggja ára áætlunar, hefur frumkvæði að grænni hagstjórn og sinnir auk þess ýmsum hagfræðilegum verkefnum þvert á svið borgarinnar. Deildarstjóri tölfræði og greiningar er Guðfinnur Þór Newman.

Atvinnumáladeild hefur umsjón með atvinnutengdum úrræðum og vinnumiðlun sérstakra starfa, þar með töldum sumarstörfum sem tilkomin eru vegna aukafjárveitinga, ráðgjöf og námskeiðum fyrir atvinnuleitendur. Atvinnumáladeild ber ábyrgð á ráðstöfun atvinnumálapotts í samræmi við mannréttindastefnu borgarinnar. Deildarstjóri atvinnumáladeildar er Ragnhildur Ísaksdóttir.

Borgarskjalasafn setur reglur um skjalastjórnun borgarstofnana og fyrirtækja í meirihlutaeign borgarinnar, hefur eftirlit með skjalastjórnun þeirra og tekur eldri skjöl þeirra til varðveislu. Safnið tekur jafnframt við skjölum einkaaðila og stuðlar að varðveislu á sögu borgarinnar. Borgarskjalavörður er Svanhildur Bogadóttir.