Sagnabrunnur - Sýningaropnun í Ásmundarsafni

Mannlíf Menning og listir

""

Sýningin Sagnabrunnur-Ásmundur og bókmenntir opnar í Ásmundarsafni laugardaginn 11 maí. kl. 16. Allir velkomnir.



Ásmundur Sveinsson (1893 - 1982) fór mismunandi leiðir í listsköpun sinni og sótti m.a. innblástur í helgisögur, goðsagnir, Íslendingasögur og þjóðsögur. Á þessari sýningu gefur að líta 20 höggmyndir í eigu Listasafns Reykjavíkur sem vísa allar með einum eða öðrum hætti í bókmenntarfinn og eru til vitnis um þann mikla sögumann sem Ásmundur Sveinsson var.

Verkin á sýningunni eru unnin á árunum 1922-1968 og sýna flest tiltekna atburði. Hver mynd er ákveðið tímaskeið oftast það dramatískasta og áhrifamesta úr hverri sögu. Ásmundur velur dauðstund Grettis úr Grettissögu í verkinu Dauði Grettis, í verkinu Davíð og Golíat sýnir Ásmundur þegar Davíð þeytir völunni í höfuð Golíat og í verkinu Móðir mín í kví  kví sjáum við þegar barnið birtist móðurinni.