Safnadagurinn á sunnudaginn

Mannlíf Menning og listir

""

Hinn árlegi íslenski safnadagur verður næst komandi sunnudag 7. júlí og taka söfn um allt land þátt í deginum. Meðal safna sem opin eru má nefna  Borgarbókasafn, Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur og Árbæjarsafn. Aðgangur er ókeypis í söfnin sem taka þátt í safnadegi og boðið verður upp á áhugaverða dagskrá.

Á íslenska safnadaginn verður boðið upp á hina árvissu og vinsælu fornbílasýningu á Árbæjarsafni. Fornbílaklúbbur Íslands sýnir ýmsa merka bíla í eigu félagsmanna á safnsvæðinu. Félagsmenn verða á staðnum og spjalla við gesti. Heimsókn á Árbæjarsafn gefur gestum kost á að upplifa ferðalag aftur í tímann.

Starfsfólk klæðist fatnaði sem tíðkaðist á 19. öld og húsfreyjan í Árbæ býður upp á nýbakaðar lummur og á baðstofuloftinu situr kona við tóskap. Í haga eru kindur, lömb, kýr og kálfur. Hægt er að fylgjast með mjöltum alla daga kl. 16.00. Þá er minnt á að veitingasala er opin í Dillonshúsi þar sem margs konar góðgæti er á boðstólum. Safnið verður opið á sunnudaginn kl. 10-17 en sýning Fornbílaklúbbsins hefst kl. 13.

Íslenski safnadagurinn er haldinn hátíðlegur á hverju ár en það er  Félag íslenskra safna og safnmanna heldur utanum kynninguna og verður dagskrá safnanna fjölbreytt að vanda. Hægt er að nálgast upplýsingar um dagskrána á facebook síðu, íslenski safnadagurinn og þegar nær dregur á síðu félags safnmanna, safnmenn.is.

Íslenski safnadagurinn var fyrst haldinn árið 1997 að frumkvæði  safnmanna sjálfra. Markmiðið með deginum er að benda á mikilvægi  faglegrar varðveislu og miðlunar sameiginlegra verðmæta þjóðarinnar og  þá einstöku leið til lifandi þekkingaröflunar og skemmtunar sem finna má  á söfnum. Söfn um allt land taka þátt og bjóða uppá ýmsa viðburði í  tilefni hans